Er ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í raun bindandi? : samanburður á forúrskurði ESB-dómstólsins og ráðgefandi áliti hjá EFTA-dómstólnum

Verkefnið er lokað til 24.12.2133. ESB-dómstólnum er fengið vald til þess að útkljá viss álitaefni varðandi túlkun og gildi ESB réttar sem upp koma við meðferð dómsmála, í dómstólum aðildarríkjanna, með forúrskurði. Heimild ESB-dómstólsins til þess að kveða upp forúrskurði er að finna í 267. gr. sát...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Berglind Harðardóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15480
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 24.12.2133. ESB-dómstólnum er fengið vald til þess að útkljá viss álitaefni varðandi túlkun og gildi ESB réttar sem upp koma við meðferð dómsmála, í dómstólum aðildarríkjanna, með forúrskurði. Heimild ESB-dómstólsins til þess að kveða upp forúrskurði er að finna í 267. gr. sáttmálans um framkvæmd Evrópusambandsins. Dómstólum aðildarríkjanna er ávallt heimilt að vísa álitaefnum varðandi túlkun og gildi ESB réttar til ESB-dómstólsins en aftur á móti er þeim það skylt undir tilteknum kringumstæðum. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að viðkomandi dómstóll aðildarríkis er bundinn af niðurstöðu ESB-dómstólsins. Því getur forúrskurður haft úrslitaáhrif fyrir málið í aðildarríkinu. Tilgangurinn með forúrskurði er að einn og sami aðili túlki ESB rétt eða segi fyrir um gildi tiltekinnar réttarheimildar. Með þessu er verið að stuðla að samræmingu og réttareiningu í aðildarríkjum ESB. EFTA dómstóllinn hefur sambærilegt úrræði en hann hefur heimild til þess að veita ráðgefandi álit um túlkun EES samningsins samkvæmt 34. gr. samnings um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Ákvæðið um ráðgefandi álit hefur 267. gr. sáttmálans um framkvæmd Evrópusambandsinss. um samræmda beitingu og skýringu EES reglna í EFTA ríkjunum. Hins vegar má telja að ráðgefandi álit sé takmarkaðra en forúrskurður á ýmsan hátt. Þrátt fyrir það má telja að ráðgefandi álit EFTA dómstólsins sé meira en lögfræðilegar álitsgerðir sama hvort litið er til lagalegs hlutverks eða afleiðinga þess að frá þeim sé vikið. Ráðgefandi álit hefur fólgið í sér boðvald og stofnar þar af leiðandi til ákveðinnar skyldu þess dómstóls sem óskaði eftir álitinu. EU Court have the authority to resolve certain issues relating to the interpretation and effect of EU law that arise in administration of justice in the courts of the Member States with preliminary ruling. The Court's authority to issue a preliminary ruling is found in Article 267 of the Treaty on the Functioning of the European Union. Courts in Member States can always refer issues ...