Hugsað út fyrir rammann : búsetuform á Íslandi borið saman við Japan

Í ritgerðinni verður varpað ljósi á þann skort á framþróun sem á sér stað í hönnun íbúða hér á landi og einsleitni í fjölbýlisbyggð sömuleiðis gagnrýnd. Ef litið er til framboðs á húsnæði í Reykjavík nútímans sést að ekki hefur verið tekið tillit til þeirra félagslegu breytinga sem hafa átt sér stað...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Björg Halldórsdóttir 1988-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15428
Description
Summary:Í ritgerðinni verður varpað ljósi á þann skort á framþróun sem á sér stað í hönnun íbúða hér á landi og einsleitni í fjölbýlisbyggð sömuleiðis gagnrýnd. Ef litið er til framboðs á húsnæði í Reykjavík nútímans sést að ekki hefur verið tekið tillit til þeirra félagslegu breytinga sem hafa átt sér stað með fjölbreyttari búsetuformum. Íbúðir hafa stækkað töluvert á síðastliðnum árum og má búast við áframhaldandi stækkun íbúða með nýútkominni byggingarreglugerð en hún felur í sér hertari reglur um lágmarks fermetrafjölda herbergja í íbúðarhúsnæði. Þessi þróun verður skoðuð með gagnrýnum augum og leitað verður svara við því hvort raunveruleg eftirspurn sé eftir slíkum íbúðum. Markmið ritgerðarinnar er að endurskilgreina gæði híbýla og verður leitað svara við spurningunni hvort þau liggi í eiginlegum fjölda fermetra eða fyrst og fremst í skipulagningu á fermetrum þar sem þarfir ólíkra íbúa eru hafðar að leiðarljósi. Þá verða hugtökin sveigjanleiki og aðlögun skoðuð í arkitektónísku samhengi. Máli mínu til stuðnings mun ég líta til Japan þar sem sveigjanleiki og aðlögun hafa verið ráðandi þættir í hönnun híbýla og mikil áhersla er lögð á fagurfræði. Leiða má líkur að því að í hönnun japanskra húsa sé að finna gæði sem vert er að greina og heimfæra yfir í búsetuform hér á landi. Japanir búa yfir færni til að nálgast rými og heimili á mjög abstrakt hátt og skilar það sér í auknum gæðum fyrir einstaklinginn. Gæðin sem um ræðir felast í fyrirkomulagi sveigjanleika og fjölbreytileika híbýlanna. Þegar allt kemur til alls snýst málið einmitt um fjölbreytileika – að taka honum fagnandi og rækta hann með margvíslegum búsetuformum.