Millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll. Búbót fyrir ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði?

Ferðaþjónusta á Íslandi verður sífellt stærri þáttur í efnahagi þjóðarinnar og er þannig mikilvægt verkfæri fyrir efnahagslega þróun Íslands. Sífellt fleiri erlendir ferðamenn koma til landsins sem nauðsynlegt er að bregðast við. Millilandaflug á landsbyggðinni er mikilvægur liður í því að fjölga mö...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sandra Rós Bjarnadóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15283
Description
Summary:Ferðaþjónusta á Íslandi verður sífellt stærri þáttur í efnahagi þjóðarinnar og er þannig mikilvægt verkfæri fyrir efnahagslega þróun Íslands. Sífellt fleiri erlendir ferðamenn koma til landsins sem nauðsynlegt er að bregðast við. Millilandaflug á landsbyggðinni er mikilvægur liður í því að fjölga möguleikum til að ferðast til landsins og dreifa ferðamönnum betur um landið. Millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll yrði að öllum líkindum samfélaginu og atvinnulífinu á svæðinu til góða. Vatnajökulsþjóðgarður felur í sér mikla möguleika til uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu sem myndi njóta góðs af því að efla flugvöllinn á Hornafirði. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að kanna gildi millilandaflugs á Hornafjarðarflugvelli fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð og þá möguleika sem slíkt flug myndi skapa sveitarfélaginu með tilliti til þróun ferðaþjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði með því að kanna viðhorf ferðaþjónustunnar og stjórnsýslunnar til slíkrar uppbyggingar. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að uppbygging Hornafjarðarflugvallar fyrir millilandaflug mun hafa mikið gildi fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, þá sérstaklega fyrir eflingu ferðaþjónustu. Hornafjarðarflugvöllur hefur gegnt stóru hlutverki í þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Ferðaþjónusta veitir mikilvæga atvinnu og með því að efla flugvöllinn er hægt að stuðla að frekari tækifærum til atvinnusköpunar og til eflingar byggðar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Tourism in Iceland is increasingly becoming a bigger part of the nation's economy and an important tool for economic development and opportunities for investment. Tourist flow is increasing in Iceland and it’s important to respond to that in some way. Legalization of the airport in Hornafjörður as an international airport would be a part of increasing opportunities to travel to the country. International flights through Hornafjörður airport would most likely be beneficial to the society and economy of the region. Vatnajökull has great potential for development of tourism in the region that would benefit ...