Reimleikar í Reykjavík: Draugasögur úr miðbænum

Höfundur lokaði aðganginum til 1.5.2020. Aðgangi lokað til 6.5. 2017 skv. fyrirmælum frá Sagnfræði- og heimspekideild. Verkefnið Reimleikar í Reykjavík byggir á söfnun minni á sögum sem fjalla um reimleika í miðbæ Reykjavíkur. Sögurnar í verkefninu eiga það sameiginlegt að gerast á þekktum stöðum í...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Kristín Ólafsdóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14745
Description
Summary:Höfundur lokaði aðganginum til 1.5.2020. Aðgangi lokað til 6.5. 2017 skv. fyrirmælum frá Sagnfræði- og heimspekideild. Verkefnið Reimleikar í Reykjavík byggir á söfnun minni á sögum sem fjalla um reimleika í miðbæ Reykjavíkur. Sögurnar í verkefninu eiga það sameiginlegt að gerast á þekktum stöðum í miðborginni, til dæmis Þjóðleikhúsinu og Dómkirkjunni. Þær eru fengnar víðsvegar að og eru misjafnar að aldri, nánar tiltekið frá miðri 19. öld til dagsins í dag. Hagnýti hluti verkefnisins er handrit að bók þar sem sögurnar birtast ásamt stuttri umfjöllun um hvern stað fyrir sig. Sögurnar í bókinni eru fengnar úr þjóðsagnasöfnum, dagblöðum, tímaritum, útvarpi og vefmiðlum. Einnig leitaði ég beint til fólks og notaði frásagnir þeirra í umfjöllun minni. Í greinargerðinni, sem er fræðilegi hluti verkefnisins, er fjallað um þá aðferðafræði sem notuð var við vinnslu bókarinnar. Auk þess er efnið tengt við kenningar fræðimanna og meðal annars er leitað svara við því hverjar helstu ástæður reimleika í sögunum eru og hvaða gildi þessi sagnaarfur og söfnun hans hefur fyrir samfélagið.