Góður lestur er vandlærð list : rannsókn á farsælum kennurum í lestri í 2. bekk í grunnskólum Reykjavíkur

Ritgerðin er lögð fram til fullnustu M. Ed.-gráðu við Kennaraháskóla Íslands. Um er að ræða 25 eininga verkefni. Markmiðið með rannsókninni var að skoða lestrarkennsluaðferðir hjá átta kennurum sem kenndu 2. bekk við grunnskóla í Reykjavík og voru taldir farsælir í sinni lestrarkennslu, kanna með vi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Edda Bentsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1449
Description
Summary:Ritgerðin er lögð fram til fullnustu M. Ed.-gráðu við Kennaraháskóla Íslands. Um er að ræða 25 eininga verkefni. Markmiðið með rannsókninni var að skoða lestrarkennsluaðferðir hjá átta kennurum sem kenndu 2. bekk við grunnskóla í Reykjavík og voru taldir farsælir í sinni lestrarkennslu, kanna með viðtölum og vettvangsathugunum hvernig kennslunni var háttað hjá þessum kennurum og hvað mótaði ákvarðanir viðkomandi kennara á því hvaða aðferðum þeir beittu. Enn fremur var greint hvað þessir íslensku kennarar áttu sameiginlegt með erlendum kennurum, aðallega í Bandaríkjunum, sem hafa þótt skila góðum árangri í kennslu lestrar á yngsta stigi grunnskólans. Með því að skoða árangur nemenda þessara kennara á lesskimunarprófi að vori 2004 var kannað hvernig þeir stóðu sig í lestri samanborið við aðra nemendur í skólum sínum og var árangur þeirra borinn saman við árangur alls árgangsins í Reykjavík það ár. Helstu niðurstöður eru þær að þeir kennarar sem rannsóknin náði til falla um margt undir þær erlendu lýsingar sem til eru á farsælum kennurum í kennslu byrjenda í lestri. Þeim er mjög umhugað um að veita öllum nemendum góða kennslu, sérstaklega þeim sem þurfa sérstaka aðstoð við lestrarnámið. Kennararnir segjast miða kennsluna við hæfi hvers og eins og að nemendur fari á sínum hraða í gegnum lestrarnámið. Kennararnir reyna eftir föngum að gera námsumhverfið lestrarhvetjandi þó svo að sumir leggi meira á sig í þeim efnum en aðrir. Kennararnir leggja áherslu á þjálfunarþáttinn í 2. bekk og að börnin lesi mikið. Lesefni barnanna er þó mismunandi fjölbreytt fyrir utan hefðbundnar lestrarbækur. Íslenskir kennarar eiga það sammerkt með erlendum starfsbræðrum sínum að leggja mikla áherslu á samstarf við foreldra um lestrarnámið. Það sem greinir íslenska farsæla kennara í lestri frá þeim erlendu er að þeir virðast ekki leggja eins mikla áherslu á að gera lestrarnámið áhugavert og erlendir kennarar. Helmingur kennaranna sagðist í viðtölunum leggja mikla áherslu á jákvætt viðhorf nemenda gagnvart lestrarnáminu. Þeir nota ekki eins ...