Strandveiðar í ljósi álits mannréttindanefndar SÞ nr. 1306/2004 um íslenska kvótakerfið : „Allir menn eigu at veiða fyrir utan netlög at ósekju.“

Í greinargerð þessari er leitast við að svara því að hve miklu leyti þær breytingar sem íslensk stjórnvöld gerðu á lögum um stjórn fiskveiða með upptöku strandveiða vorið 2009 hafi komið til móts við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 1306/2004. Jafnframt eru fjallað um þær aðgerðir sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Einar Pálsson 1955-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14109
Description
Summary:Í greinargerð þessari er leitast við að svara því að hve miklu leyti þær breytingar sem íslensk stjórnvöld gerðu á lögum um stjórn fiskveiða með upptöku strandveiða vorið 2009 hafi komið til móts við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 1306/2004. Jafnframt eru fjallað um þær aðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa þegar komið í framkvæmd eða hyggjast koma í framkvæmd til að bregðast við álitinu. Til að varpa ljósi á viðfangsefnið er einnig reifaðir nokkrir Hæstaréttardómar um stjórnskipulegt gildi þeirra ákvæða laga um stjórn fiskveiða sem mesti ágreiningur hefur verið um í þjóðfélaginu undanfarna áratugi. Fjallað er um þau mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar sem mestu skipta varðandi umfjöllunarefnið, þ.e. jafnræðisregluna og atvinnufrelsisákvæðið. Álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna er síðan rakið ítarlega. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að íslensk stjórnvöld hafa enn sem komið er ekki komið til móts við niðurstöðu mannréttindanefndarinnar nema að takmörkuðu leyti með upptöku strandveiða. Jafnfamt er vandséð að markmiðum stjórnvalda um „að gæta atvinnufrelsis og að tryggja að jafnræðis verði gætt við úthlutun afnotaréttarins og aðgengi að hinni sameiginlegu auðlind“ verði náð með nýju frumvarpi til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða, nema að takmörkuðu leyti, að mati höfundar. Það er einnig mat höfundar að íslenska ríkinu beri að taka álit mannréttindanefndar SÞ alvarlega eins og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar sínar og gera þær ráðstafanir sem þarf til að fylgja eftir skoðunum nefndarinnar. In this paper the writer seeks to answer the question to what extent the amendments made to the Icelandic Fisheries Management Act by the introduction of “coastal fishing” in the spring of 2009 fulfil the requirements made by the United Nations Human Rights Committee (UNHRC) according to its Views in case no. 1306/2004. The measurements already implemented in Iceland or planned by Icelandic government authorities in reaction to the Committee’s views are discussed. In order to shed light upon ...