Hörfunargarðar við Fláajökul: Landlögun, dreifing, setgerð og bygging

Fláajökull er skriðjökull sem gengur úr suðausturhluta Vatnajökuls niður á Mýrar í Hornafirði. Fláajökull er jafngangsjökull sem gengur fram og hörfar í takt við breytingar í loftslagi. Landlögun og dreifing hörfunargarða framan við jökulinn var kortlögð og setgerð og byggingu þeirra lýst. Markmið þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Heimir Ingimarsson 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13895
Description
Summary:Fláajökull er skriðjökull sem gengur úr suðausturhluta Vatnajökuls niður á Mýrar í Hornafirði. Fláajökull er jafngangsjökull sem gengur fram og hörfar í takt við breytingar í loftslagi. Landlögun og dreifing hörfunargarða framan við jökulinn var kortlögð og setgerð og byggingu þeirra lýst. Markmið þessarar rannsóknar var að setja fram líkan fyrir myndun hörfunargarða til glöggvunar á þeim ferlum sem eru að verki við sporða jafngangsjökla. Eftir að Litlu ísöld lauk í lok 19. aldar hefur Fláajökull hörfað nær sleitulaust með nokkrum stuttum framskriðum þó. Í lok 9. áratugarins fór loftslag að hlýna og eftir 1995 hefur jökullinn hörfað stöðugt. Hörfunin frá 1995-2000 var að meðaltali 10-25 m/ári en hefur verið 50-70 m/ári síðan þá. Myndun hörfunargarða við Fláajökul má tengja við lítið framskrið jökulsins í lok hvers vetrar þrátt fyrir að á ársgrundvelli sé jökullinn í hörfun. Fjarlægð var mæld á milli hörfunargarða á tveimur stöðum og hún borin saman við hraða hops út frá sporðamælingum og hitafarsgögnum. Í ljós kom að bil á milli hörfunargarða er í nokkuð góðu samræmi við meðalhita sumarmánuða. Því hærri sem hitinn er, því hraðar hörfar jökulsporðurinn og bil á milli hörfunargarða verður meira. Athuganir á setgerð sýna að hörfunargarðar við Fláajökul samanstanda af grunnbornum jökulruðningi með einsleitum og meðalgrófum grunnmassa úr sandi og silti ásamt kassalaga og lítt núnum til lítt köntuðum bergmolum. Bygging garðanna er sömuleiðis einsleit og án allra einkenna aflögunar. Þetta bendir til þess að efnið hafi borist um þrýstimisgengi frá botni jökulsins upp á yfirborð og fallið þaðan niður af jökulsporðinum, hlaðist upp og myndað svokallaða dembigarða. Fláajökull is a southeastern, non-surging outlet of the Vatnajökull ice cap in Iceland. The morphology and distribution of recessional moraines in the glacier forefield were mapped and their sedimentary composition and internal structure descriped. The aim of this study is to propose a model for the formation of recessional moraines in order to better ...