Gæði eða geymsla? : um frístundaheimili og skóladagvistun fyrir 6–9 ára börn á Íslandi
Í flestum vestrænum löndum býðst foreldrum að skrá börn sín í lengda viðveru eða á frístundaheimili að loknum hefðbundnum skóladegi og þar til foreldrar ljúka vinnu. Mismunandi er hvaða kröfur eru gerðar til slíkrar starfsemi og víða hamla aðbúnaður og starfskjör eðlilegri fagþróun starfsins. Hér á...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Article in Journal/Newspaper |
Language: | Icelandic |
Published: |
2011
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/13788 |
Summary: | Í flestum vestrænum löndum býðst foreldrum að skrá börn sín í lengda viðveru eða á frístundaheimili að loknum hefðbundnum skóladegi og þar til foreldrar ljúka vinnu. Mismunandi er hvaða kröfur eru gerðar til slíkrar starfsemi og víða hamla aðbúnaður og starfskjör eðlilegri fagþróun starfsins. Hér á landi hafa ekki verið sett sérstök lög um slíka starfsemi en þó er samkvæmt grunnskólalögum heimilt að bjóða upp á lengda viðveru og raunar gert ráð fyrir að í hverjum skóla sé nemendum boðið skipulagt félags- og tómstundastarf. Nýleg könnun Sambands íslenskra sveitarfélaga sýnir að lengd viðvera er í einhverju formi í 75% sveitar- félaga hér á landi. Ólík viðmið eru um barnafjölda, menntun starfsmanna og þjónustustig. Í Reykjavík hefur þjónustan flakkað á milli ólíkra sviða borgarinnar, en nýlega var tekin ákvörðun um að sameina yfirstjórn skóla og frístundaheimila. Starfsemi frístundaheimila og lengdrar viðveru myndi styrkjast ef sveitarfélög og ríki sameinast um markmið og setja viðmið um rekstur og fagmennsku starfsins. |
---|