Áhrif íslenska efnahagshrunsins á hagsmunahópa listamanna: Álit hagsmunahópa á niðurskurði og stefnubreytingu stjórnvalda til menningarmála

Í kjölfar efnahagshruns haustið 2008 hafa stjórnvöld þurft að skera niður, hagræða og forgangsraða verkefnum sínum og fjármögnun. Menningar- og listastarfsemi hefur ekki verið undanskilin niðurskurði og hafa hagsmunahópar listamanna haft skiptar skoðanir á þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa farið í....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarni Bjarnason 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13662
Description
Summary:Í kjölfar efnahagshruns haustið 2008 hafa stjórnvöld þurft að skera niður, hagræða og forgangsraða verkefnum sínum og fjármögnun. Menningar- og listastarfsemi hefur ekki verið undanskilin niðurskurði og hafa hagsmunahópar listamanna haft skiptar skoðanir á þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa farið í. Gerð var eigindleg rannsókn sem byggir annars vegar á viðtölum við fólk sem starfar við menningar- og listastarfsemi og hins vegar á skriflegum heimildum til að kanna áhrif efnahagshrunsins á hagsmunahópa listamanna og álit þeirra á niðurskurði og stefnubreytingu stjórnvalda í menningarmálum. Listgreinar hafa fundið misjafnlega mikið fyrir niðurskurðinum. Þetta ástand hefur kallað á hugsanlegar breytingar í stjórnsýslu sem varða útdeilingu fjármagns til listgreina. Lögbundnir sjóðir virðast vera ákjósanlegir þar sem fagnefndir útdeila fjármagni til ólíkra listgreina. Þessir sjóðir lúta reglu um hæfilega fjarlægð og eru óháðir pólitískum áhrifum. Endurgreiðsla til kvikmyndagerðar er fyrirferðameiri á árunum eftir efnahagshrun og var endurgreiðslan aukin á sama tíma og skorið var niður fjármagn til úthlutunar úr kvikmyndasjóði. Hagræn áhrif menningar og lista verða sífellt meiri. Listastarfsemi tengist mörgum greinum með ýmsum hætti og er það álit viðmælenda að efnahagslegt mikilvægi listgreina megi meðal annars sjá í fjölda ferðamanna sem komi til landsins í tengslum við menningartengda ferðaþjónustu. After an economic crisis in Iceland in the fall of 2008 the government had to cut spending and prioritise all projects and funding. Cultural and artistic activities have not been excluded from these cuts. Groups of artists have different opinions on the actions that authorities have taken. A qualitative research was done based on interviews with people who work in the cultural and artistic sector and also on written sources. The aim was to view impacts of the economic crisis on groups of interest, such as artists, and to view their opinion on the actions and policies authorities have taken in the cultural sector. The ...