Summary: | Greinaflokkur um kennaramenntun til heiðurs Ólafi J. Proppé sjötugum á tíu ára afmæli Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun Greint er frá samanburðarrannsókn á þróun í menntun norrænna grunnskólakennara og kannað hvort og á hvern hátt þróun á Íslandi er sambærileg þróuninni á öðrum Norðurlöndum. Kannað er hvort og á hvern hátt þróunin endurspeglar bóknámsrek, þ.e.a.s. hvort sú tilhneiging sé á Norðurlöndum að færa kennaramenntun í háskóla eða í stofnanir sem smám saman leitast við að haga starfsemi sinni á líkan hátt og gert er í háskólum. Sérstaklega er kannað hvernig bóknámsrek er tilkomið og hvernig það tengist menntapólitískum aðstæðum og uppbyggingu æðri menntunar í hverju landi. Niðurstöður leiða í ljós að einkum þrennt hefur áhrif á bóknámsrek. 1) Stjórnvöld breyta sýn sinni á menntun grunnskólakennara og telja að hún þurfi að verða fræðilegri og bóklegri en áður. 2)Stjórnvöld breyta menntakerfinu þannig að kerfið í heild eða að hluta til færist nær gildum og vinnubrögðum háskóla en það var áður. 3)Einstaka stofnanir, sem ekki eru háskólar en mennta grunnskólakennara, geta sótt um og fengið virðingarstöðu háskóla að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þróunin endurspeglar mismikið bóknámsrek í löndunum fimm, m.a. kemur í ljós ólík þróun menntunar íslenskra og danskra grunnskólakennara. Menntun íslenskra grunnskólakennara flyst snemma í háskóla en menntun danskra grunnskólakennara fer fram í stofnunum sem eru ólíkastar háskólum miðað við önnur lönd Norðurlandanna. Nánari greining bendir til þess að landfræðilegar og menningarlegar aðstæður hafi haft áhrif á þróun menntunar grunnskólakennara í Danmörku og á Íslandi. A comparative study on the development of the education of Nordic primary school teachers is introduced. The question is explored as to whether the development of this teacher education in Iceland is similar to other Nordic countries,and whether this development reflects academic drift. In example: Is there a Nordic tendency to transfer teacher education to universities or institutions that ...
|