Skilnaðarráðgjöf. Reynsla og þörf skilnaðarforeldra

Í ritgerðinni er fjallað um skilnaðarráðgjöf til foreldra. Markmiðið er að kanna reynslu, viðhorf og þörf skilnaðarforeldra fyrir ráðgjöf í þeim tilgangi að auka þekkingu á viðfangsefninu. Megindlegum aðferðum var beitt við vinnslu rannsóknarinnar en spurningarlisti var sendur til foreldra sem gengu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Íris Dögg Lárusdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13541
Description
Summary:Í ritgerðinni er fjallað um skilnaðarráðgjöf til foreldra. Markmiðið er að kanna reynslu, viðhorf og þörf skilnaðarforeldra fyrir ráðgjöf í þeim tilgangi að auka þekkingu á viðfangsefninu. Megindlegum aðferðum var beitt við vinnslu rannsóknarinnar en spurningarlisti var sendur til foreldra sem gengu frá lögskilnaði eða sambúðarslitum hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík árið 2009. Alls svöruðu 175 foreldrar og var svarshlutfallið 39,2%. Meginniðurstöður eru þær að foreldrarnir fengu upplýsingar og ráðgjöf helst frá sýslumanni en líka var algengt að engar upplýsingar eða ráðgjöf hafi fengist. Um helmingur foreldra sótti ráðgjöf til fagaðila og voru flestir foreldrar hlutlausir eða sáttir með ráðgjöfina. Foreldrarnir vilja heldur sækja ráðgjöf til fagaðila á stofu eða til félagsþjónustu sveitarfélaga en til sýslumanns. Foreldrarnir töldu sig almennt hafa verið í þörf fyrir ráðgjöf í tengslum við skilnað og vildu þeir helst sækja upplýsingar og ráðgjöf varðandi fjárhags- og lagaleg atriði til sýslumanna og lögmanna en um atriði sem snúa að samvinnu og samskiptum vildu þeir helst sækja til félagsráðgjafa og sálfræðinga. Niðurstöðurnar benda til þess að sú skilnaðarráðgjöf sem foreldrum stendur til boða í dag sé ábótavant. Dregin er sú ályktun að þörf sé á að komið sé til móts við ólíkar þarfir skilnaðarforeldra með fjölbreyttum ráðgjafarúrræðum og kynnt líkan að þjónusturófi í skilnaðarráðgjöf. Lykilorð: Skilnaður, ráðgjöf, foreldrar, börn In the thesis divorce mediation for parents is covered. The aim is to investigate the experience, attitude and need divorced parents have towards mediation to increase the overall knowledge of the topic. The research used quantitative methodology in the form of a questionnaire sent to parents who had divorced or separated through the district magistrate’s office in Reykjavik in 2009. In total 175 parents participated with a response rate of 39.2%. The main findings were that the parents received information and counselling primarily from the district magistrate’s office, but it ...