Frjáls er fjötralaus maður: Lífskjör barnafjölskyldna í kjölfar efnahagshrunsins 2008

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort lífskjör barnafjölskyldna á Íslandi höfðu breyst í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Lögð var áhersla á að skoða lífskjör barnafjölskyldna út frá ólíkum heimilisgerðum og tekjum, lífskjör þeirra voru borin saman við lífskjör barnlausra auk þess sem tengsl lífs...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13540
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort lífskjör barnafjölskyldna á Íslandi höfðu breyst í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Lögð var áhersla á að skoða lífskjör barnafjölskyldna út frá ólíkum heimilisgerðum og tekjum, lífskjör þeirra voru borin saman við lífskjör barnlausra auk þess sem tengsl lífskjara og lífsgæða barnafjölskyldna skoðuð. Fyrri rannsóknir á afleiðingum efnahagskreppa sýna að fjárhagserfiðleikar og óvissa sem oft fylgir í kjölfar þeirra geti haft neikvæð áhrif á foreldrahlutverk. Félagsráðgjafar vinna með barnafjölskyldum hvort sem þeir starfa í félags- skóla eða heilbrigðisþjónustu og koma því að velferð barna og fjölskyldna. Þekking á lífskjörum barnafjölskyldna er einnig mikilvæg fyrir stjórnvöld og aðra sem vinna að því að tryggja hag þeirra. Í rannsókninni voru notuð fyrirliggjandi gögn auk þess sem áhersla var lögð á ítarlega umfjöllun um stöðu þekkingar. Gögnin voru valin með það að markmiði að gefa sem besta mynd af lífskjörum barnafjölskyldna. Gögnin eru frá Hagstofu Íslands, Capacent Gallup og Embætti landlæknis. Stjórnvöld hafa brugðist við neikvæðum afleiðingum efnahagskreppunnar með ýmsum aðgerðum sérstaklega með það að markmiði að vernda viðkvæma hópa. Þó sýna niðurstöður að lífskjör foreldra séu verri en annarra hópa samfélagsins og hafi þar að auki versnað meira í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Því eru áframhaldandi aðgerðir stjórnvalda nauðsynlegar til að tryggja velferð fjölskyldna og barna. Lykilorð: Efnahagshrun, lífskjör, lífsgæði, foreldrar, fjárhagserfiðleikar, velferð, fyrirliggjandi gögn. The aim of the research was to explore the effects of the economic crisis in 2008 on the standard of living of parents in Iceland. Further aims of the study were to look at the standard of living of families with children from different backgrounds, compared to those without children, according to income and to explore the relationship between standard of living and quality of life of families with children. Previous research on the consequences of the economic crisis demonstrate ...