Langtímanotendur fjárhagsaðstoðar: Ungir Reykvíkingar í kjölfar kreppu
Markmið þessarar rannsóknar er að kanna stöðu ungra langtímanotenda fjárhagsaðstoðar í Reykjavík á aldrinum 18-24 ára og hvaða þjónustu Velferðarsvið Reykjavíkurborgar veitir þeim. Markmiðsúrtak var notað og valdir voru allir notendur á aldrinum 18-24 ára sem fengu fjárhagsaðstoð sex mánuði eða leng...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2012
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/13527 |
Summary: | Markmið þessarar rannsóknar er að kanna stöðu ungra langtímanotenda fjárhagsaðstoðar í Reykjavík á aldrinum 18-24 ára og hvaða þjónustu Velferðarsvið Reykjavíkurborgar veitir þeim. Markmiðsúrtak var notað og valdir voru allir notendur á aldrinum 18-24 ára sem fengu fjárhagsaðstoð sex mánuði eða lengur árið 2008. Bæði voru notaðar eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir. Málaskrá notenda í úrtaki var skoðuð með tilliti til félagslegrar stöðu og þeirrar þjónustu sem þeim hefur verið veitt. Til þess að fá dýpri þekkingu á þjónustu Velferðarsviðs Reykjavíkur voru tekin upplýsingaviðtöl við félagsráðgjafa á sex þjónustumiðstöðvum borgarinnar. Niðurstöður sýndu að félagsleg staða ungra notenda er almennt ekki góð. Vímuefnaneysla er á meðal margra notenda og stór hluti glímir við geðræn vandkvæði. Uppeldisaðstæðum hefur í mörgum tilfellum verið ábótavant og menntunarstig þeirra er almennt mun lægra en almennt meðal íslenskra ungmenna. Þjónusta Velferðarsviðs til þessa notenda er fjölbreytt. Mörg og gagnleg úrræði eru í boði en þó er lítið um úrræði sem eru sérstaklega ætluð ungmennum. Samhliða þeim úrræðum sem í boði eru vinna félagsráðgjafar með ungum notendum eftir þeirri hugmyndafræði sem félagsráðgjöf byggir á ásamt því að nota staðlaða matslista. Félagsráðgjafar á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar telja álag á þeim full mikið sem hindri það að þeir geti sinnt notendum eins vel og þeir hefðu kosið. Stór hluti, eða 68% af notendum í úrtaki þurftu á fjárhagsaðstoð að halda öll árin 2008-2011. The aim of this study is to assess the social status of young long-term social assistance recipients in Reykjavík aged 18-24 years and what services Social Services in Reykjavík provides them. The selection of participants in the study was chosen with the aim in mind, so all benefit receivers of the ages 18-24 who received financial assistance for six months or longer in 2008 were included. Both qualitative and quantitative data was used. The participants’ case files were included to consider their variable social ... |
---|