Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri

Verkefnið er lokað Verkefnið fjallar um leiðir til að halda uppi aga í grunnskólum. Nauðsynlegt er fyrir kennara að þekkja vel til aðferða sem má nota til að halda uppi aga því agastjórnun er eitt af þeim erfiðari verkum sem bíða þeirra í starfi. Í verkefninu eru kynnt nokkur sjónarmið um aga og aga...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Eydís Bára Jóhannesdóttir, Járnbrá Björg Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Agi
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1327
id ftskemman:oai:skemman.is:1946/1327
record_format openpolar
spelling ftskemman:oai:skemman.is:1946/1327 2023-05-15T13:08:20+02:00 Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri Eydís Bára Jóhannesdóttir Járnbrá Björg Jónsdóttir Háskólinn á Akureyri 2002 application/pdf http://hdl.handle.net/1946/1327 is ice http://hdl.handle.net/1946/1327 Agi Grunnskólar Thesis Bachelor's 2002 ftskemman 2022-12-11T06:58:08Z Verkefnið er lokað Verkefnið fjallar um leiðir til að halda uppi aga í grunnskólum. Nauðsynlegt er fyrir kennara að þekkja vel til aðferða sem má nota til að halda uppi aga því agastjórnun er eitt af þeim erfiðari verkum sem bíða þeirra í starfi. Í verkefninu eru kynnt nokkur sjónarmið um aga og agastjórnun og skýrt frá könnun sem lögð var fyrir í fimm grunnskólum á Akureyri. Markmið könnunarinnar var að athuga hvort skipulögð agakerfi (refsi- og/eða umbunarkerfi) væru notuð í skólunum, hvernig þessum kerfum væri háttað og varpa ljósi á viðhorf skólastjóra, kennara og nemenda til umbunar- og refsikerfa svo og annarra aðferða sem notaðar eru til að framfylgja skólareglum. Jafnframt var spurt hvort nemendur, kennarar eða skólastjórar hefðu hugmyndir að einhverju sem þeir teldu vænlegra til árangurs en þær aðferðir sem beitt er í dag. Þátttakendur könnunarinnar voru frá fimm skólum á Akureyri, skólastjórar, nemendur eins 7. bekkjar úr hverjum skólanna og umsjónarkennarar sömu bekkja. Alls tóku þátt í könnuninni fimm skólastjórar, fimm kennarar og 94 nemendur, þar af 43 stúlkur og 51 drengur. Spurningalistar voru lagðir fyrir kennara og nemendur en tekin viðtöl við skólastjórana. Niðurstöður könnunarinnar sýna að skipulögð agakerfi í einhverri mynd eru á unglingastigi í öllum skólunum sem tóku þátt í könnuninni en í einum skólanum er kerfið einungis notað á mætingu en öðrum aðferðum beitt til að hafa áhrif á hegðun. Á yngri stigum eru samræmd skipulögð agakerfi í tveimur skólanna en sumir kennaranna nota sín eigin kerfi við agastjórnun ásamt fleiri aðferðum. Flestir skólastjórarnir og kennararnir reyndust hlynntir skipulögðum agakerfum og umbunarkerfi áttu meira fylgi að fagna en refsikerfi. Nemendur töldu líka að umbunarkerfi myndi hafa jákvæðari áhrif á hegðun þeirra en refsikerfi. Skólastjórar og kennarar voru frekar ánægðir með aðferðirnar sem notaðar eru við agastjórnun og um 41% nemenda var á sama máli, tæpur helmingur var hvorki ánægður né óánægður. Thesis Akureyri Akureyri Akureyri Skemman (Iceland) Akureyri Varpa ENVELOPE(11.284,11.284,64.505,64.505) Halda ENVELOPE(25.170,25.170,70.853,70.853)
institution Open Polar
collection Skemman (Iceland)
op_collection_id ftskemman
language Icelandic
topic Agi
Grunnskólar
spellingShingle Agi
Grunnskólar
Eydís Bára Jóhannesdóttir
Járnbrá Björg Jónsdóttir
Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri
topic_facet Agi
Grunnskólar
description Verkefnið er lokað Verkefnið fjallar um leiðir til að halda uppi aga í grunnskólum. Nauðsynlegt er fyrir kennara að þekkja vel til aðferða sem má nota til að halda uppi aga því agastjórnun er eitt af þeim erfiðari verkum sem bíða þeirra í starfi. Í verkefninu eru kynnt nokkur sjónarmið um aga og agastjórnun og skýrt frá könnun sem lögð var fyrir í fimm grunnskólum á Akureyri. Markmið könnunarinnar var að athuga hvort skipulögð agakerfi (refsi- og/eða umbunarkerfi) væru notuð í skólunum, hvernig þessum kerfum væri háttað og varpa ljósi á viðhorf skólastjóra, kennara og nemenda til umbunar- og refsikerfa svo og annarra aðferða sem notaðar eru til að framfylgja skólareglum. Jafnframt var spurt hvort nemendur, kennarar eða skólastjórar hefðu hugmyndir að einhverju sem þeir teldu vænlegra til árangurs en þær aðferðir sem beitt er í dag. Þátttakendur könnunarinnar voru frá fimm skólum á Akureyri, skólastjórar, nemendur eins 7. bekkjar úr hverjum skólanna og umsjónarkennarar sömu bekkja. Alls tóku þátt í könnuninni fimm skólastjórar, fimm kennarar og 94 nemendur, þar af 43 stúlkur og 51 drengur. Spurningalistar voru lagðir fyrir kennara og nemendur en tekin viðtöl við skólastjórana. Niðurstöður könnunarinnar sýna að skipulögð agakerfi í einhverri mynd eru á unglingastigi í öllum skólunum sem tóku þátt í könnuninni en í einum skólanum er kerfið einungis notað á mætingu en öðrum aðferðum beitt til að hafa áhrif á hegðun. Á yngri stigum eru samræmd skipulögð agakerfi í tveimur skólanna en sumir kennaranna nota sín eigin kerfi við agastjórnun ásamt fleiri aðferðum. Flestir skólastjórarnir og kennararnir reyndust hlynntir skipulögðum agakerfum og umbunarkerfi áttu meira fylgi að fagna en refsikerfi. Nemendur töldu líka að umbunarkerfi myndi hafa jákvæðari áhrif á hegðun þeirra en refsikerfi. Skólastjórar og kennarar voru frekar ánægðir með aðferðirnar sem notaðar eru við agastjórnun og um 41% nemenda var á sama máli, tæpur helmingur var hvorki ánægður né óánægður.
author2 Háskólinn á Akureyri
format Thesis
author Eydís Bára Jóhannesdóttir
Járnbrá Björg Jónsdóttir
author_facet Eydís Bára Jóhannesdóttir
Járnbrá Björg Jónsdóttir
author_sort Eydís Bára Jóhannesdóttir
title Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri
title_short Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri
title_full Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri
title_fullStr Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri
title_full_unstemmed Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri
title_sort agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á akureyri
publishDate 2002
url http://hdl.handle.net/1946/1327
long_lat ENVELOPE(11.284,11.284,64.505,64.505)
ENVELOPE(25.170,25.170,70.853,70.853)
geographic Akureyri
Varpa
Halda
geographic_facet Akureyri
Varpa
Halda
genre Akureyri
Akureyri
Akureyri
genre_facet Akureyri
Akureyri
Akureyri
op_relation http://hdl.handle.net/1946/1327
_version_ 1766083635943833600