Sjónrænn staðarandi Akraness - Helstu mótunarþættir

Viðfangsefnið í þessu verkefni er að skoða og greina sjónrænan staðaranda Akraness. Markmiðið er að skoða hvaða þættir það eru sem helst móta sjónrænan staðaranda Akraness með því að greina og skoða eftirfarandi þætti; bæjarhlið, hjarta bæjar, kennileiti, sjónlínur, göturými, liti, form og áferð. Ti...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hallfríður Guðmundsdóttir 1972-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13236
id ftskemman:oai:skemman.is:1946/13236
record_format openpolar
spelling ftskemman:oai:skemman.is:1946/13236 2023-05-15T13:08:08+02:00 Sjónrænn staðarandi Akraness - Helstu mótunarþættir Hallfríður Guðmundsdóttir 1972- Landbúnaðarháskóli Íslands 2012-05 application/pdf http://hdl.handle.net/1946/13236 is ice http://hdl.handle.net/1946/13236 Thesis Bachelor's 2012 ftskemman 2022-12-11T06:51:35Z Viðfangsefnið í þessu verkefni er að skoða og greina sjónrænan staðaranda Akraness. Markmiðið er að skoða hvaða þættir það eru sem helst móta sjónrænan staðaranda Akraness með því að greina og skoða eftirfarandi þætti; bæjarhlið, hjarta bæjar, kennileiti, sjónlínur, göturými, liti, form og áferð. Til þess að nálgast viðfangsefnið var hugtakið staðarandi skilgreint og farið var í vettvangsferðir á svæðið, rýnt í sögu, ljósmyndir, kort og skipulag ásamt því að bera viðfangsefnið saman við erlendar bækur og rannsóknir er fjölluðu um sama efni. Leitast var við að svara spurningum eins og hvernig staðarandi var áður, hvert hann stefni og hvað sé jákvætt og neikvætt varðandi staðaranda Akraness. Til að draga fram lykilþætti greiningar var notast við ljósmyndir og kort. Eftir úttektina á svæðinu og greiningu á sjónrænum þáttum má segja að það sem er sterkast við Akranes er staðsetningin. Útsýnið og fjörurnar í kring auka mjög á gæði svæðisins. Fjölbreytt byggingarform ásamt flatneskju svæðisins ýtir undir sterkar sjónlínur. Ókostirnir eru helst að göturými er mikið sem minnkar tilfinningu fyrir rýminu, bæjarhlið er óljóst og óaðlaðandi og kjarni svæðisins er ekki nógu sterkur. Gamli kjarninn er illa nýttur, lokaður og viðhaldi er ábótavant. Staðarandi Akraness byggðist áður nær eingöngu á útgerð og var stéttaskipting mikil. Lítið skipulag var á myndun þéttbýlis sem var helst í höndum eigenda útgerðar og verslunar. Stefna staðaranda Akraness í dag er óljós, ný hverfi hafa verið byggð eins og úthverfi og þétting lítil. Göturými hefur haldist breið og ekki ýtt nægilega undir viðhald á sögulegum minjum. Niðurstöður eru helst þær að það þarf ekki mikið til að ýta undir sjónrænan staðaranda svæða. Efla þarf þátttöku íbúa og sveitafélags til að auka vellíðan notenda og ferðamennsku. Það að Akranes er sjávarpláss, nálægð þess við höfuðborgarsvæðið og höfnin á staðnum eru tól sem hægt væri að nýta betur til að auka gegnumstreymi um svæðið og efla sjónrænan staðaranda. Thesis Akranes Skemman (Iceland) Kring ENVELOPE(157.900,157.900,-74.983,-74.983) Draga ENVELOPE(7.900,7.900,63.004,63.004) Hjarta ENVELOPE(13.784,13.784,66.771,66.771) Akranes ENVELOPE(-22.075,-22.075,64.322,64.322) Kjarni ENVELOPE(-18.094,-18.094,65.646,65.646) Breið ENVELOPE(-19.200,-19.200,65.372,65.372)
institution Open Polar
collection Skemman (Iceland)
op_collection_id ftskemman
language Icelandic
description Viðfangsefnið í þessu verkefni er að skoða og greina sjónrænan staðaranda Akraness. Markmiðið er að skoða hvaða þættir það eru sem helst móta sjónrænan staðaranda Akraness með því að greina og skoða eftirfarandi þætti; bæjarhlið, hjarta bæjar, kennileiti, sjónlínur, göturými, liti, form og áferð. Til þess að nálgast viðfangsefnið var hugtakið staðarandi skilgreint og farið var í vettvangsferðir á svæðið, rýnt í sögu, ljósmyndir, kort og skipulag ásamt því að bera viðfangsefnið saman við erlendar bækur og rannsóknir er fjölluðu um sama efni. Leitast var við að svara spurningum eins og hvernig staðarandi var áður, hvert hann stefni og hvað sé jákvætt og neikvætt varðandi staðaranda Akraness. Til að draga fram lykilþætti greiningar var notast við ljósmyndir og kort. Eftir úttektina á svæðinu og greiningu á sjónrænum þáttum má segja að það sem er sterkast við Akranes er staðsetningin. Útsýnið og fjörurnar í kring auka mjög á gæði svæðisins. Fjölbreytt byggingarform ásamt flatneskju svæðisins ýtir undir sterkar sjónlínur. Ókostirnir eru helst að göturými er mikið sem minnkar tilfinningu fyrir rýminu, bæjarhlið er óljóst og óaðlaðandi og kjarni svæðisins er ekki nógu sterkur. Gamli kjarninn er illa nýttur, lokaður og viðhaldi er ábótavant. Staðarandi Akraness byggðist áður nær eingöngu á útgerð og var stéttaskipting mikil. Lítið skipulag var á myndun þéttbýlis sem var helst í höndum eigenda útgerðar og verslunar. Stefna staðaranda Akraness í dag er óljós, ný hverfi hafa verið byggð eins og úthverfi og þétting lítil. Göturými hefur haldist breið og ekki ýtt nægilega undir viðhald á sögulegum minjum. Niðurstöður eru helst þær að það þarf ekki mikið til að ýta undir sjónrænan staðaranda svæða. Efla þarf þátttöku íbúa og sveitafélags til að auka vellíðan notenda og ferðamennsku. Það að Akranes er sjávarpláss, nálægð þess við höfuðborgarsvæðið og höfnin á staðnum eru tól sem hægt væri að nýta betur til að auka gegnumstreymi um svæðið og efla sjónrænan staðaranda.
author2 Landbúnaðarháskóli Íslands
format Thesis
author Hallfríður Guðmundsdóttir 1972-
spellingShingle Hallfríður Guðmundsdóttir 1972-
Sjónrænn staðarandi Akraness - Helstu mótunarþættir
author_facet Hallfríður Guðmundsdóttir 1972-
author_sort Hallfríður Guðmundsdóttir 1972-
title Sjónrænn staðarandi Akraness - Helstu mótunarþættir
title_short Sjónrænn staðarandi Akraness - Helstu mótunarþættir
title_full Sjónrænn staðarandi Akraness - Helstu mótunarþættir
title_fullStr Sjónrænn staðarandi Akraness - Helstu mótunarþættir
title_full_unstemmed Sjónrænn staðarandi Akraness - Helstu mótunarþættir
title_sort sjónrænn staðarandi akraness - helstu mótunarþættir
publishDate 2012
url http://hdl.handle.net/1946/13236
long_lat ENVELOPE(157.900,157.900,-74.983,-74.983)
ENVELOPE(7.900,7.900,63.004,63.004)
ENVELOPE(13.784,13.784,66.771,66.771)
ENVELOPE(-22.075,-22.075,64.322,64.322)
ENVELOPE(-18.094,-18.094,65.646,65.646)
ENVELOPE(-19.200,-19.200,65.372,65.372)
geographic Kring
Draga
Hjarta
Akranes
Kjarni
Breið
geographic_facet Kring
Draga
Hjarta
Akranes
Kjarni
Breið
genre Akranes
genre_facet Akranes
op_relation http://hdl.handle.net/1946/13236
_version_ 1766074824986198016