Dreifður tónlistarskóli
Hugmyndin um rekstur dreifðs tónlistarskóla á rætur sínar að rekja til þess mikla húsnæðis sem Akureyrarbær hefur yfir að ráða, húsnæði sem í flestur tilfellum stendur autt seinni hluta dags. Nú er Tónlistarskólinn á Akureyri starfræktur að Hvannavöllum 14 og sækja flestir nemendur skólans kennslu þ...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2004
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/1289 |
Summary: | Hugmyndin um rekstur dreifðs tónlistarskóla á rætur sínar að rekja til þess mikla húsnæðis sem Akureyrarbær hefur yfir að ráða, húsnæði sem í flestur tilfellum stendur autt seinni hluta dags. Nú er Tónlistarskólinn á Akureyri starfræktur að Hvannavöllum 14 og sækja flestir nemendur skólans kennslu þangað. Nokkrir nemendur sem sækja tónlistarnám á skólatíma fara þá úr hefðbundinni kennslu í tónlistarkennslu. Ljóst er að foreldrar bera töluverðan kostnað af því að keyra börnin í og úr tónlistarkennslu. Dreifður tónlistarskóli er hér skilgreindur sem tónlistarskóli sem að hluta til er rekinn á mörgum stöðum, hann hefur höfuðstöðvar en töluverður hluti starfsseminnar á sér ekki fast aðsetur. Hann er dreifður um bæinn, rekinn í grunnskólum bæjarins eftir að almennri kennslu lýkur eða í aðstöðu sem ekki er í notkun á hefðbundnum skólatíma. Allir nemendur á 1.-3. stigi í tónlistarnámi myndu sækja tónlistarkennslu í þann grunnskóla sem þau sækja sem dagsskóla. Þannig ættu öll börn á Akureyri jafnan aðgang að tónlistarnámi á þessu stigi. Verkefnið sýnir framá að mögulegt er að þessi hluti tónlistarkennslu verði í grunnskólum bæjarins. Foreldrar hefðu töluvert hagræði af þessum flutningi og óbeinn hagnaður samfélagssins yrði töluverður því við flutninginn verður aðgengi betra fyrir væntanlega nemendur skólans og bæjarfélagið í heild yrði auðugra af metnaðarfullum tónlistarnemum. Lykilorð Dreifður tónlistarskóli Skóli Tónlistarkennsla Tónlistarskóli Akureyri |
---|