Ástvinamissir

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.- prófs á grunnskólabraut kennaradeildar við Háskólann á Akureyri vorið 2005. Við höfðum leitast við að varpa ljósi á það hvernig börn upplifa ásvinamissi af völdum dauðsfalla með hliðsjón...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnheiður Ásta Einarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1259
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.- prófs á grunnskólabraut kennaradeildar við Háskólann á Akureyri vorið 2005. Við höfðum leitast við að varpa ljósi á það hvernig börn upplifa ásvinamissi af völdum dauðsfalla með hliðsjón af því hvernig hægt er að styðja við bakið á börnum sem takast á við sorg. Í fyrrihluta ritgerðarinnar skyggnumst við inn í það hvernig sorgarferlið er almennt. Einnig fjöllum við um sorg barna og skilning þeirra á dauðanum. Við fjöllum um þau tengsl sem börn mynda við sína nánustu á fyrstu æviárum sínum þar sem þessi tengsl hafa áhrif á tengslamyndun þeirra í framtíðinni. Þá er gerð grein fyrir því hvernig börn upplifa sorg með hliðsjón af aldri og þroska. Við gerum sorgarferli barna skil en komum inn á að upplifum barna á sorg er persónubundin þó svo að margt megi finna sem virðist almennt í ferlinu. Í seinni hluta ritgerðarinnar fjöllum við um börn, trú og bænir með það að markmiði að varpa ljósi á það hvernig trúin getur styrkt börn í sorg. Síðan er vikið að þátttöku barna í athöfnum sem fylgja í kjölfar andláts. Að lokum er fjallað um hlutverk grunnskólans varðandi stuðning við börn í sorg, æskileg viðbrögð innan skólans. Lögð er áhersla á mikilvægi fræðslu um sorg og sorgarviðbrögð fyrir starfsfólk og nemendur. Meginniðurstaðan er sú að mikilvægt er að þeir sem annast börn sem hafa misst náinn ástvin hafi fengið fræðslu á þessu sviði sem og börnin sjálf á skólagöngu sinni. Einnig er mikilvægt að innan grunnskólanna sé starfandi virkt áfallateymi og áfallaáætlun sem öllum er kunn og aðgengileg þegar áfall dynur yfir. Ekki er síður mikilvægt að sá stuðningur sem skólinn veitir getur hjálpað börnum að takast á við lífið.