Summary: | Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á mikilvægi þess að hlusta á raddir barna og leyfa þeim að taka þátt í ákvörðunum sem varða þau sjálf. Fjallað er um lýðræði barna, hvernig það birtist í leikskólastarfi og hvernig það tengist sjálfræði barna. Leikefni spilar stórt hlutverk í lífi leikskólabarna og er gerð grein fyrir eðli og hlutverki þess, ásamt því að fjallað er um leikefni í tengslum við leik og staðsetningu þess í námsumhverfi. Gerð var athugun í leikskóla í Reykjavík, þar sem sjálfræði barna var skoðað í sambandi við val og staðsetningu leikefnis. Í niðurstöðum athugunarinnar kemur fram að börnin hafi töluvert um það að segja, en ekki mikið í sambandi við staðsetningu, þar sem þau eru ekki höfð með í ráðum þegar kemur að því að finna leikefninu stað.
|