Málfræði handa unglingum : lýsandi málfræði og forskriftarmálfræði

Í greininni er sýnt fram á nauðsyn þess að ganga út frá lýsandi málfræði frekar en forskriftarmálfræði við kennslu málfræði í grunnskóla. Sérstaklega er horft á unglingastigið enda er hlutur málfræði í íslenskukennslu mestur þar. Fyrst er farið í gegnum nokkurt námsefni í málfræði sem notað er á ung...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hanna Óladóttir 1968-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12420
Description
Summary:Í greininni er sýnt fram á nauðsyn þess að ganga út frá lýsandi málfræði frekar en forskriftarmálfræði við kennslu málfræði í grunnskóla. Sérstaklega er horft á unglingastigið enda er hlutur málfræði í íslenskukennslu mestur þar. Fyrst er farið í gegnum nokkurt námsefni í málfræði sem notað er á unglingastigi grunnskóla um þessar mundir en sú úttekt er hluti rannsóknar sem höfundur stóð að með Önnu S. Þráinsdóttur vorið 2010 og náði til fjögurra grunnskóla í Reykjavík. Úttektin sýnir að forskriftarmálfræði er mjög ríkjandi í því námsefni sem skólarnir velja sér. Því næst er sýnt fram á hversu illa þessi nálgun hentar til að ná fram markmiðum gildandi aðalnámskrár þegar kemur að íslenskri málfræði. Að lokum eru lýst kostum þess að ganga út frá lýsandi málfræði við kennsluna til að ná fram markmiðum aðalnámskrár en einnig til að fræða nemendur um eðli og hlutverk tungumála almennt, bæði í félagslegum og menningarlegum skilningi.