Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum

Í þessari ritgerð er fjallað um úrskurðarnefnd í vátryggingamálum. Sambærileg úrræði á Norðurlöndum og Íslandi eru borin saman við þau úrræði sem úrskurðarnefnd í vátryggingamálum býður upp á. Að auki er gerð rannsókn á þeim málum sem nefndinni hafa borist allt frá því hún var stofnuð og á málum sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Sif Haraldsdóttir 1986-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12395
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um úrskurðarnefnd í vátryggingamálum. Sambærileg úrræði á Norðurlöndum og Íslandi eru borin saman við þau úrræði sem úrskurðarnefnd í vátryggingamálum býður upp á. Að auki er gerð rannsókn á þeim málum sem nefndinni hafa borist allt frá því hún var stofnuð og á málum sem hafa farið fyrir úrskurðarnefnd og í kjölfarið verið skotið fyrir dómstóla. Að lokum eru niðurstöður dregnar saman. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum er vistuð hjá Fjármálaeftirlitinu og starfar samkvæmt samkomulagi viðskiptaráðuneytisins, Neytendasamtakanna og fyrrum sambandi íslenskra tryggingafélaga. Nefndin fjallar um ágreining um bótaskyldu milli vátryggingartaka og vátryggingarfélags að því gefnu að félagið hafi áður hafnað kröfu vátryggingartaka. Árið 2006 tóku gildi ný lög um vátryggingasamninga nr. 30/2004 og með þeim var tilvist úrskurðarnefndarinnar lögfest. Lagaumhverfi úrskurðarnefndarinnar hefur því breyst frá stofnun nefndarinnar árið 1994, málskotum fyrir nefndina hefur fjölgað svo um munar og tegundir mála sem nefndinni berast eru fjölbreyttari en áður. Ritgerðinni er ætlað að varpa ljósi á hvort nauðsynlegt sé að breyta starfsumhverfi nefndarinnar í takt við framangreinda þróun og gera grein fyrir mögulegum annmörkum á meðferð mála fyrir nefndinni með hliðsjón af framangreindum breytingum. Niðurstaða ritgerðinnar er sú að bæta þurfi reglur um málsmeðferð nefndarinnar og ýmis atriði í starfsemi hennar þó ekki sé nauðsynlegt að breyta fyrirkomulagi hennar í grundvallaratriðum. This thesis is about the Icelandic Insurance Complaints Committee. The thesis is based on a comparison of the Icelandic Committee and other compatible complaints boards in Denmark, Norway, Sweden and Finland. Similar consumer complaints bodies in Iceland were also examined for comparison. A research was conducted on the rulings of the Committee since 1994 to explain how types of cases brought before the Committee have developed. Cases that have been resolved by the Insurance Complaints Committee and consequently brought before ...