Menning í sögum og heimahögum : grenndarfræðimiðuð kennsla í grunnskóla.

Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni mitt til B.Ed. prófs í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Viðfangsefni hennar er grenndarfræðimiðuð kennsla og samþætting námsgreina í grunnskóla og er markmiðið að varpa ljósi á hvort það að nýta heimabyggðina í skólastarfi sé vænlegur kostur. Grenndarfræði...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Matthildur Þorvaldsdóttir 1966-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12227
Description
Summary:Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni mitt til B.Ed. prófs í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Viðfangsefni hennar er grenndarfræðimiðuð kennsla og samþætting námsgreina í grunnskóla og er markmiðið að varpa ljósi á hvort það að nýta heimabyggðina í skólastarfi sé vænlegur kostur. Grenndarfræði felur í sér fræðslu um nærsamfélagið og hefur að markmiði að efla sögu-, grenndar- og umhverfisvitund. Þessir þættir eru fléttaðir órjúfanlegum böndum og styrkja í sameiningu sjálfsvitund nemenda. Grenndarkennsla er leið til að koma grenndarfræði fyrir í skólastarfi. Með því að fræða nemendur um þeirra nánasta umhverfi er einnig verið að auka líkur á að heimahaginn þyki álitlegur kostur að búa á í framtíðinni. Ritgerðin skiptist í fjóra hluta og í þeim fyrsta er grenndarfræði skilgreind og hugtök sem henni tengjast. Í öðrum hluta er grenndarkennslu í skólasamfélaginu gerð skil og ýmsar hugmyndir útfærðar með markmið aðalnámskrár í huga. Hugmyndafræði þriggja fræðimanna og ýmsar kennsluaðferðir sem hægt er að tengja við grenndarkennslu er viðfangsefni þriðja hluta. Grindavík og grenndarkennsla er heiti á síðasta hluta ritgerðarinnar og þar eru fjögur vettvangsverkefni kynnt. Fjallað er um undirbúning kennarans og framkvæmdina á vettvangi. Einnig eru kynntar nokkrar leiðir að úrvinnslu verkefna fyrir nemendur sem byggðar eru á áfangamarkmiðum aðalnámskrár frá árinu 2007. Grindavík er bæjarfélag sem stendur á sunnanverðum Reykjanesskaga. Þar er náttúran hrjóstrug, fiskimiðin gjöful og jarðorka sem stendur undir fjölbreyttri atvinnustarfsemi. Með því að nota sögu og umhverfi Grindavíkurbæjar í verkefnavinnu er nemendum gefið tækifæri á að kynnast nærsamfélagi sínu um leið og sjálfsvitund þeirra er efld.