Fjármálalæsi á Íslandi : núverandi staða, hvert skal stefna og hvernig?

Þessi rannsóknarskýrsla er lokaverkefni í viðskiptafræði við Markaðs- og stjórnunarbraut Háskólans á Akureyri. Hugmyndin að viðfangsefninu á rætur að rekja til einlægs áhuga skýrsluhöfundar á að bæta fjármálalæsi Íslendinga. Fjármálalæsi er mjög mikilvægur þáttur í daglegu lífi fólks og snertir líf...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnþórunn Þorbergsdóttir 1974-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12215
Description
Summary:Þessi rannsóknarskýrsla er lokaverkefni í viðskiptafræði við Markaðs- og stjórnunarbraut Háskólans á Akureyri. Hugmyndin að viðfangsefninu á rætur að rekja til einlægs áhuga skýrsluhöfundar á að bæta fjármálalæsi Íslendinga. Fjármálalæsi er mjög mikilvægur þáttur í daglegu lífi fólks og snertir líf allra, sérstaklega þegar komið er á unglings- og fullorðinsár. Fyrsti hluti þessa verkefnis snýst um fræðilega þætti sem tengjast fjármálalæsi og fyrri rannsóknum á því. Í öðrum hluta verkefnisins er sýnt hvernig fjármálalæsi fellur að hugtökum markaðsfræðinnar. Í síðasta hluta verkefnisins er rannsókninni gerð skil, niðurstöður túlkaðar og komið með tillögur til úrbóta. Rannsóknarspurningarnar eru:  Hver er staða fjármálalæsis á Íslandi í dag?  Hvernig verður best staðið að innleiðingu fjármálakennslu í grunnskólum á Íslandi með það í huga að bæta fjármálalæsi Íslendinga til lengri tíma litið? Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að fjármálalæsi á Íslandi er ekki nógu gott, hvorki meðal unglinga né þeirra sem eldri eru. Svo hægt sé að innleiða fjármálakennslu í grunnskólana þarf aðkomu margra hagsmunaaðila og þeir þurfa að vinna saman. Sem stendur vinna ýmsir aðilar að þessum málum en til að ná árangri þurfa þeir að vinna sem teymi. Að auki er skortur á góðu námsefni fyrir öll aldursstig og þjálfa þarf kennara í kennslu fjármálalæsis. Þá vantar áherslu og umfjöllun um málefnið í Aðalnámskrá grunnskóla. Meðal ráðamanna vantar jafnframt skýra og skorinorða stefnu sem tekið yrði eftir varðandi þessi málefni. Lykilorð: Fjármálalæsi, kennsla, námsefni, grunnskólar, nemendur