Starfsánægja á almenningsbókasöfnum. Eigindleg rannsókn á starfsánægju starfsmanna almenningsbókasafna á Stór-Reykjavíkursvæðinu

Efni þessarar rannsóknar er starfsánægja og líðan starfsmanna almenningsbókasafna á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Markmiðið var að leita svara við því hvernig þátttakendum rannsóknarinnar liði í starfi, líkar við starfið og hver þáttur samstarfsmanna, yfirmanns og annarra þátta starfsins hafa á líðan. Sk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnhildur Sigríður Birgisdóttir 1960-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10606
Description
Summary:Efni þessarar rannsóknar er starfsánægja og líðan starfsmanna almenningsbókasafna á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Markmiðið var að leita svara við því hvernig þátttakendum rannsóknarinnar liði í starfi, líkar við starfið og hver þáttur samstarfsmanna, yfirmanns og annarra þátta starfsins hafa á líðan. Skoðaðir voru vefir almenningsbókasafna með tilliti til starfsmannastefnu þeirra og skilgreiningar fræðimanna á starfsánægju og hvað það er sem getur valdið óánægju í starfi. Ennfremur var leitast við að máta líðan starfsmanna inn í tveggjaþáttakenningu Herzbergs og þarfapýramída Maslows með tilliti til starfsánægju og nokkrar erlendar rannsóknir sem fjalla um þætti sem hafa áhrif á starfsánægju bókasafnsstarfsfólks kynntar stuttlega. Aðferðin sem notuð var í þessari rannsókn flokkast undir eigindlegar rannsóknaraðferðir. Niðurstöður rannsóknarinnar eru byggðar á viðtölum við níu starfsmenn almenningsbókasafna og endurspegla því eingöngu þeirra upplifun og viðhorf með tilliti til líðanar í starfi á almenningsbókasöfnum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Rauði þráðurinn í niðurstöðunum er gagnkvæm virðing og traust. Hrós, hvatning, eftirtekt, frumkvæði, skilningur, gott upplýsingaflæði, fjölbreytileiki starfsins, nálægð við yfirmann og gott aðgengi að honum, samstarf við önnur söfn, léttleiki og ábyrgð er það sem ýtir undir vellíðan og gerir þátttakendur rannsóknarinnar ánægða í starfi. Job satisfaction is a concept that does not seems to have been researched specifially among public library employees in Iceland untill now. How do public library employees feel at work? What are the main factors that affect employees in public libraries and their job statisfaction? Does it matter how their colleagues and supervisors cooperate, how they act and what they say? In this study job satisfaction and job dissatisfaction is observed from factors as in Maslow´s Hierarcy of Needs and Herzberg‘s Two Factor Theory. This is a qualitative research with face-to-face interviews with nine employees in five public libraries in The Greater ...