Þróun, skipulagning og markaðsseting á nýju vefsvæði : unnið í samstarfi við Bláa lónið

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Síðustu ár hefur heimasíðum fjölgað mikið, þó að mesta veraldarvefstískan sé yfirstaðin. Sala á netinu hefur þó aukist en hún hefur auðveldað mikið fyrir þeim fyrirtækjum og viðskiptavinum þeirra sem tileinka sér þessa viðskiptaleið. Í þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tómas Þór Eiríksson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1058
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Síðustu ár hefur heimasíðum fjölgað mikið, þó að mesta veraldarvefstískan sé yfirstaðin. Sala á netinu hefur þó aukist en hún hefur auðveldað mikið fyrir þeim fyrirtækjum og viðskiptavinum þeirra sem tileinka sér þessa viðskiptaleið. Í þessari skýrslu kemur fram hvernig hægt er að markaðssetja á netinu. Byrjað er á að fjalla almennt um markaðsfræði en því næst er talað um markaðsfræði á netinu. Hægt er að líta á heimasíðu sem starfsmann sem hægt er að leita upplýsinga til og kaupa þjónustu af 24 klukkutíma sólahringsins alla daga ársins. Til samanburðar er tekið fyrir ferðaþjónustufyrirtækið Bláa Lónið hf sem nýtir sér þá miklu möguleika sem veraldavefurinn gefur því. Með sölu á netinu getur fyrirtækið þjónustað þá gesti sem heimsækja það en stoppa hér á landi í stuttan tíma. Til eru margskonar aðferðir í markaðssetningu á netinu og ekki víst að sú sem hentar Bláa Lóninu muni henta öðrum. Því eru allar upplýsingar unnar með þetta umrædda fyrirtæki í huga. Helstu leiðir fyrir þetta umrædda fyrirtæki eru teknar fyrir en þær eru: Markaðssetning innan veggja fyrirtækisins, fjölgun fólks á póstlistanum og síðan að setja upp auglýsingaborða á ákveðnum heimasíðum. Lykilorð: Markaðssetning, heimasíða, Bláa Lónið, veraldavefurinn og þróun.