Þekkingarauður fyrirtækja á Íslandi

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Notkun þekkingarstjórnunar hefur verið að breiðast út síðastliðin ár í heiminum. Sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að huga að þekkingu starfsmanna sinna og hvernig hægt sé að nýta þennan þekkingarauð til að ná samkeppnisforskoti á marka...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1052
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Notkun þekkingarstjórnunar hefur verið að breiðast út síðastliðin ár í heiminum. Sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að huga að þekkingu starfsmanna sinna og hvernig hægt sé að nýta þennan þekkingarauð til að ná samkeppnisforskoti á markaði. Þekking er mikilvægt vopn í því að koma fram með sífelldar nýjungar á markaði. Með auknum nýjungum geta fyrirtæki styrkt stöðu sína. Gerð var könnun á notkun þekkingarstjórnunar í fyrirtækjum í fiskvinnslu og tölvuþjónustu/ráðgjöf. Ekki reyndist þó unnt að bera saman notkun þekkingarstjórnunar í starfsgreinunum tveimur, eins og lagt var af stað með, þar sem fá fyrirtæki í fiskvinnslu nýta sér aðferðir þekkingarstjórnunar. Fyrirtækin voru yfirleitt farin að huga að duldri þekkingu og hvernig best væri að ná henni fram. Opinber þekking er einnig nýtt og hefur henni verið komið á innra net fyrirtækja. Mörg atriði komu fram varðandi ávinning sem fyrirtæki töldu sig hafa af notkun þekkingarstjórnunar og mætti þar nefna betri samkeppnishæfni, aukin skilvirkni, hæfara starfsfólk og bætt samskipti við viðskiptavininn. Heildar niðurstaða könnunarinnar var að fyrirtækin sem nýta sér þekkingarstjórnun gera það vel og nýta þá möguleika sem þessi aðferð bíður upp á til að bæta samkeppnisstöðu fyrirtækja.