Upplifun fólks án atvinnu á þeim úrræðum sem í boði eru í Rauðakrosshúsunum í Hafnarfirði, Kópavogi og Mosfellsbæ

Rauði kross Íslands ákvað í kjölfar efnahagskreppunnar 2008, að setja af stað virkniúrræði fyrir fólk án atvinnu. Starfsemin hófst í Borgartúni Reykjavík vorið 2009. Árið 2010 var ákveðið að Rauðakrosshús með svipaðri starfsemi yrðu opnuð í Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Grundarfirði. Markmi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kolbrún Guðjónsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10350
Description
Summary:Rauði kross Íslands ákvað í kjölfar efnahagskreppunnar 2008, að setja af stað virkniúrræði fyrir fólk án atvinnu. Starfsemin hófst í Borgartúni Reykjavík vorið 2009. Árið 2010 var ákveðið að Rauðakrosshús með svipaðri starfsemi yrðu opnuð í Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Grundarfirði. Markmið þessarrar rannsóknar var að skoða upplifun notenda á virkniúrræðum Rauðakrosshúsanna í Mosfellsbæ, Kópavogi og Hafnarfirði. Í rannsókninni er spurt hvort notendunum finnist að úrræðin mæti þörfum þeirra. Einnig hvort þættir eins og aldur, kyn og menntun hafi einhver áhrif á það hvernig úrræðin nýtast viðkomandi. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru fjögur upplýsingaviðtöl við starfsmenn Rauða kross Íslands og níu viðtöl við notendur þjónustunnar. Niðurstöðurnar gefa til kynna að virkniúrræði Rauða kross Íslands séu að skila tilætluðum árangri, það er að fólk geti fengið stuðning við að takast á við breyttar aðstæður, fái félagsskap og tækifæri til að nýta krafta sína öðrum til gagns. Það að fólk án atvinnu hafi stað sem það getur komið á, hitt annað fólk, fengið fræðslu og tekið þátt í hinum ýmsu viðburðum sem húsin bjóða uppá, er mikilvægur þáttur til að fólk haldist virkt og einangrist ekki félagslega á meðan að á atvinnuleysinu stendur. Þannig benda niðurstöðurnar til þess að nauðsynlegt sé að hafa virkniúrræði í boði fyrir fólk án atvinnu, sem henti báðum kynjum, öllum aldri og fólki með ólíka menntun. Einnig benda niðurstöðurnar til þess að þátttaka fólksins sjálfs skipti miklu máli til að úrræðin virki sem best. Following the economic crisis in the year 2008, The Icelandic Red Cross decided to organize activation measures for the unemployed. These activation measures started in Reykjavík in spring 2009 and in the local communities of Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær and Grundarfjörður in 2010. The aim of this study was to look at how participants experienced the activation measures in Hafnarfjörður, Kópavogur and Mosfellsbær. The influence of factors like age, sex and degree of ...