Summary: | Lokaverkefni til meistaraprófs í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin telst til 30 ECTS eininga og var unnin með hléum frá vori 2009 til sumarsins 2011 en rannsóknin var framkvæmd sumarið 2009. Ferðamannaiðnaðurinn er einn stærsti iðnaður sem til er í dag í öllum heiminum, bæði hvað varðar atvinnu og tekjur. Þegar kemur að ferðamannaiðnaðinum á Íslandi þá eru norðanverðir Vestfirðir ekki nægilega vel sóttir af þeim ferðamönnum sem eiga leið um landið. Þessi rannsókn var því framkvæmd til að kanna hvort eitthvað gæti varpað ljósi á það hvers vegna svo fáir ferðamenn sem eiga leið um Ísland fari til norðanverðra Vestfjarða. Markmið rannsóknarinnar gekk út á að kanna hvort hægt sé að skýra veika stöðu ferðamannaiðnaðarins á norðanverðum Vestfjörðum. Til að ná þessu markmiði var kannað hvernig ferðaþjónustuaðilar á svæðinu nýta sér markaðsfræðina í vinnubrögðum sínum og einnig var ímynd norðanverðra Vestfjarða meðal fólks könnuð. Til að ná þessum upplýsingum var stuðst við eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir. Aðalatriðið sem fram kom í þessari rannsókn þegar uppbygging ferðaþjónustu á norðanverðum Vestfjörðum var rædd við ferðaþjónustuaðila á svæðinu var skortur á heildarstefnumótun, heildstæðri markaðsstefnu og markaðssetningu. „Það þarf að skapa ímynd fyrir Vestfirði“ sagði einn viðmælandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna einnig að ímynd norðanverðra Vestfjarða er frekar góð, „náttúrufegurð“ var sá þáttur sem skoraði langhæst og „leiðinlegt“ langlægst. Það er samt sem áður athyglisvert hversu hlutlaust fólk er þegar kemur að flokkunum „úrval afþreyingar“ og „úrval gististaða“. Þetta er þó í samræmi við það sem kemur fram í opnu spurningunni þar sem mjög fáir nefna atriði tengd afþreyingu og viðburðum á norðanverðum Vestfjörðum. Tourism is one of the biggest industries in the world today, both regarding work and income. When it comes to tourism in Iceland the northern Westfjords is not getting a fair share of the tourists that travel to and around the ...
|