„Veggurinn er alltaf til staðar“: Upplifun háskólamenntaðra innflytjenda af samskiptum og samningsstöðu gagnvart vinnuveitendum

Publisher's version (útgefin grein) Markmið þessarar rannsóknar var að veita innsýn í og skilja hvernig háskólamenntaðir innflytjendur á íslenskum vinnumarkaði upplifa samningsstöðu sína og samskipti við vinnuveitanda sinn. Tekin voru tólf viðtöl við háskólamenntaða innflytjendur, níu konur og...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Christiansen, Thora, Kristjánsdóttir, Erla S.
Other Authors: Viðskiptafræðideild (HÍ), Faculty of Business Administration (UI), Félagsvísindasvið (HÍ), School of Social Sciences (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Félagsfræðingafélags Íslands 2016
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/906
Description
Summary:Publisher's version (útgefin grein) Markmið þessarar rannsóknar var að veita innsýn í og skilja hvernig háskólamenntaðir innflytjendur á íslenskum vinnumarkaði upplifa samningsstöðu sína og samskipti við vinnuveitanda sinn. Tekin voru tólf viðtöl við háskólamenntaða innflytjendur, níu konur og þrjá karla á aldrinum 32-48 ára, sem hafa búið á Íslandi í 2 til 14 ár. Meirihluti þátttakenda hafði töluverða starfsreynslu í heimalandi sínu og nokkrir höfðu unnið og búið í löndum utan heimalands síns áður en þeir fluttu til Íslands. Helstu niðurstöður voru þær að viðmælendurnir upplifðu að samingsstaða þeirra væri veik því skortur á færni í íslensku takmarkaði starfsmöguleika þeirra og aðgengi að tengslaneti og félagsauði. Einnig upplifðu þeir að þeir væru sífellt að rekast á vegg þegar þeir leituðu réttar síns og að það að vera útlendingur væri um margt smánarblettur sem kæmi í veg fyrir að þeir yrðu fullgildir meðlimir í tengslanetinu og að framlag þeirra og menntun yrði metin að verðleikum. Þar að auki upplifðu innflytjendurnir að þeir þyrftu sífellt að vera að sanna sig í starfi þar sem vinnuveitandinn vantreysti þeim og gerði lítið úr hæfni þeirra. Að lokum fannst þeim að þeir þyrftu að sýna þakklæti fyrir að vera starfsmenn á íslenskum vinnumarkaði, sem enn fremur gerir lítið úr framlagi, þekkingu, reynslu og menntun innflytjendanna. The objective of this research was to provide an insight into and understanding of the lived experience of immigrants with a university degree working in the Icelandic labor market, focusing on their communication and negotiation position vis-à-vis their employer. Twelve interviews were conducted with immigrants with university degree, nine female and three male from 32-48 years old, who have lived in Iceland from 2-14 years. The majority of the interviewees had considerable work experience in their native country and a few had lived and worked in other countries as well before they moved to Iceland. The main results indicate that the interviewees experience a weak negotiating ...