Summary: | Í þessari ritgerð er fjallað um stafræna nýsköpun og áskoranir fyrir endurhugsun ferðaþjónustunnar með áherslu á lífsstílsfrumkvöðla í dreifbýli. Útgangspunktur rannsóknarinnar er umræða um þróun ferðaþjónustu sem ávarpar þörf fyrir að draga úr neikvæðum áhrifum atvinnugreinarinnar á áfangastaði. Rýnt er í hvernig lífsstílsfrumkvöðlar í ferðaþjónustu í dreifbýli geta mögulega haft jákvæð áhrif með notkun stafrænnar nýsköpunar. Sérstök áhersla er lögð á að kanna samband stafrænnar nýsköpunar og frumkvöðlastarfs í dreifbýli á Íslandi. Byggt er á eigindlegri aðferðafræði og var gögnum safnað með vettangsvinnu, hálfstöðluðum viðtölum og með spurningalistum. Rætt var við 60 frumkvöðla og fulltrúa stoðkerfis ferðaþjónustunnar. Einnig var stofnað til lausnamóts (hakkaþon) og það nýtt sem tilvik í notendarannsókn (e. action research) til að draga fram hvernig ólíkar leiðir til að hagnýta stafvæðingu í dreifbýli birtast í verki. Rannsóknin skapar dýpri skilning á athöfnum og viðhorfum smárra aðila í ferðaþjónustu til þróunar ferðamála á Íslandi. Hún dregur fram hvernig þessir aðilar skilja og vinna með nýsköpun og stafrænar lausnir og hvaða hvatar liggja þar að baki. Rannsóknin veitir nýja þekkingu á möguleikum frumkvöðla til að taka þátt í endurhugsun ferðaþjónustunnar og setur í lokin fram tillögur um stefnu og aðgerðir til að efla slíkt starf. Markmið rannsóknarinnar er að brúa fræði og framkvæmd og skapa þekkingu á sviðum sem hingað til hafa verið lítt könnuð hérlendis sem og á alþjóðlegum vettvangi. This PhD tackles the challenge of rethinking tourism through digital innovation with a focus on rural tourism lifestyle entrepreneurs in Iceland. Based on discussions on tourism development that address the urgent need to reduce the negative impacts of tourism on destinations, this PhD investigates the potential positive contribution of rural tourism lifestyle entrepreneurs in this regard in this regard through the use of digital innovation. The PhD particularly explores the interrelation between digital innovation and ...
|