Björn Gunnlaugsson og Tölvísi : Stærðfræði og einlæg trú í menntun 19. aldar

Ferill nítjándu aldar stærðfræðingsins Björns Gunnlaugssonar (1788–1876) er einstakur. Hann naut aldrei skólavistar á Íslandi en náði óvenjulegum tökum á stærðfræði, að mestu með sjálfsnámi, áður en hann settist í Kaupmannahafnarháskóla, 29 ára að aldri. Þar vann hann til tvennra gullverðlauna fyrir...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarnadóttir, Kristín
Other Authors: Menntavísindasvið
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4853
Description
Summary:Ferill nítjándu aldar stærðfræðingsins Björns Gunnlaugssonar (1788–1876) er einstakur. Hann naut aldrei skólavistar á Íslandi en náði óvenjulegum tökum á stærðfræði, að mestu með sjálfsnámi, áður en hann settist í Kaupmannahafnarháskóla, 29 ára að aldri. Þar vann hann til tvennra gullverðlauna fyrir stærðfræðiþrautir. Hann kenndi stærðfræði við Bessastaðaskóla og Lærða skólann í Reykjavík um fjörutíu ára skeið og landmælingar hans voru grunnur að Íslandskortum í hálfa öld. Bók hans um stærðfræði, Tölvísi, var gefin út er hann var orðinn 77 ára að aldri. Tölvísi, sem er meginviðfangsefni greinarinnar, bregður ljósi á hversu mikils Björn mat stærðfræðina og á heimspekilega og trúarlega afstöðu hans til stærðfræðilegra hugtaka og lögmála. Nokkur efni verða skoðuð í því skyni að öðlast innsýn í hugsun Björns: núllið og óendanleikinn, veldareglur og ímyndaðar tölur. Peer reviewed