Áhrif COVID-19 faraldursins á líðan hjúkrunar- og ljósmóðurfræðinemenda og viðhorf þeirra til námsumhverfis í samkomutakmörkunum : eigindleg rannsókn

Tilgangur. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að lýsa áhrifum COVID-19-faraldursins á líðan og nám hjúkrunar- og ljósmóðurfræðinemenda og hins vegar að lýsa viðhorfum nemenda til breytinga sem gerðar voru á námsumhverfi þeirra á tímum faraldursins. Aðferð. Rannsóknin var eigindleg. Þátttakendu...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Svavarsdóttir, Margrét Hrönn, Kristófersson, Gísli Kort, Svavarsdóttir, Erla Kolbrún, Sveinsdóttir, Herdís, Thorsteinsson, Hrund Scheving, Bernharðsdóttir, Jóhanna, Flygenring, Birna Guðrún
Other Authors: Hjúkrunarfræðideild, Önnur svið, Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4262
Description
Summary:Tilgangur. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að lýsa áhrifum COVID-19-faraldursins á líðan og nám hjúkrunar- og ljósmóðurfræðinemenda og hins vegar að lýsa viðhorfum nemenda til breytinga sem gerðar voru á námsumhverfi þeirra á tímum faraldursins. Aðferð. Rannsóknin var eigindleg. Þátttakendur voru samtals 15: fimm nemendur í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri, fimm nemendur í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fimm nemendur í framhaldsnámi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Í heildina voru fjögur rýnihópaviðtöl tekin með fjarfundarbúnaði á vormánuðum 2021. Niðurstöðurnar voru þemagreindar með aðferð Braun og Clarke (2012). Niðurstöður. Greind voru tvö meginþemu og sjö undirþemu. Meginþemað „Svo skellur covid á“ lýsir þeirri óreiðu og óvissu sem nemendur fundu fyrir, upplifun þeirra á skyndilegri breytingu á námsumhverfi og kennsluaðferðum, sem og áskorunum sem þeir mættu í klínísku námi. Þemað „Krefjandi tímar“ lýsir því hvernig nemendunum fannst þeir vera einir og því mikla álagi sem þeir voru undir bæði í námi og einkalífi á tímum faraldursins. Nemendur lýstu ótta við að bera smit og þörf fyrir stuðning var mikil, en hann fengu nemendur frá fjölskyldu og samnemendum en fáir þeirra voru meðvitaðir um eða nýttu sér þá aðstoð sem skólarnir buðu upp á. Ályktun. Fordæmalausar samkomutakmarkanir á tímum faraldursins höfðu margþætt áhrif á bóklegt og klínískt nám nemendanna sem og á líðan þeirra. Niðurstöðurnar sýna mikilvægi þess að nægur stuðningur sé frá kennurum og námsráðgjöfum sem og mikilvægi góðs aðgengis að tækniaðstoð. Aim. The aim of the study was to describe the effects of the COVID-19 pandemic on the well-being and learning of nursing and midwifery students and to describe their perceptions of the changes made to their learning environment during the pandemic. Method. The study used a descriptive qualitative design. Fifteen students participated: five undergraduate nursing students from University of Akureyri and five undergraduate nursing and five graduate students ...