Asbest og áhrif þess á heilsufar Íslendinga - yfirlitsgrein

Asbest eru þráðlaga kristölluð sílikat-steinefni sem hafa mismunandi byggingu og eiginleika. Asbestþræðir eru mjög slitsterkir og þola mjög mikinn hita. Það var því algengt að asbest væri notað sem brunavarnarefni, hitaeinangrun og þar sem mikill hiti er notaður. Asbest hefur verið bannað á Íslandi...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Gudmundsson, Gunnar, Tomasson, Kristinn
Other Authors: Læknadeild, Lyflækninga- og bráðaþjónusta, Landspítali
Format: Other/Unknown Material
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3595
https://doi.org/10.17992/lbl.2019.0708.241
Description
Summary:Asbest eru þráðlaga kristölluð sílikat-steinefni sem hafa mismunandi byggingu og eiginleika. Asbestþræðir eru mjög slitsterkir og þola mjög mikinn hita. Það var því algengt að asbest væri notað sem brunavarnarefni, hitaeinangrun og þar sem mikill hiti er notaður. Asbest hefur verið bannað á Íslandi frá 1983 en enn er mikið magn af því í byggingum, skipum og í hitaveituleiðslum. Innflutningur á Íslandi var mikill árin fyrir bann en minnkaði svo ört og er nánast enginn í dag. Við vinnu með asbest myndast nálar- eða þráðlaga asbestryk. Það er þetta ryk sem er hættulegt heilsunni. Biðtími frá útsetningu að sjúkdómi getur verið allt að 40 ár. Asbest berst í lungun við innöndun og getur valdið asbestveiki sem er lungnatrefjunarsjúkdómur með hæga framþróun. Asbest getur einnig valdið góðkynja fleiðruvökva, fleiðruskellum og dreifðum fleiðruþykknunum. Asbest er líka krabbameinsvaldandi. Algengast er lungnakrabbamein en asbest er áhættuþáttur fyrir krabbameinum í fleiri líffærum. Illkynja miðþekjuæxli er algengast í lungnafleiðru en getur sést í fleiri himnum. Nýgengi þessara æxla er hátt á Íslandi og er enn vaxandi hjá körlum. Dánartíðni er hæst á Íslandi af Evrópulöndum. Mikilvægt er fyrir lækna að hafa asbestútsetningu í mismunagreiningu við sjúkdómum í lungum og fleiðru og við greiningu krabbameina. Asbestos are crystallized silicate minerals that form fibers with different structures and characteristics. Asbestos fibers are very durable and can tolerate very high temperatures. Therefore it was common to use asbestos as a fire retardants, heat insulation and where high temperature is used. Asbestos has been banned in Iceland from 1983 but can still be found in large amounts in buildings, ships and hot water pipes. Large amounts of asbestos were imported in the years before the ban but diminished soon to almost nothing today. Needle or filamentous shaped dust is released when working with asbestos. It is this dust that is dangerous for health. The latent time from exposure to disease can be up to forty years. Asbestos ...