„Gagnlegast að sjá þessa hluti sem maður sér ekki venjulega“ : Starfendarannsókn um mat á námi og vellíðan leikskólabarna af erlendum uppruna
Þessi grein fjallar um starfendarannsókn sem framkvæmd var á einni deild í leikskóla á höfuðborgarsvæðinu veturinn 2017‒2018. Alls tóku sjö starfsmenn þátt í þessum hluta rannsóknarinnar sem er hluti af stærri rannsóknarverkefni á vegum RannUng sem ber heitið Mat á námi og vellíðan barna og eru þátt...
Published in: | Netla |
---|---|
Main Authors: | , |
Other Authors: | |
Format: | Article in Journal/Newspaper |
Language: | Icelandic |
Published: |
2020
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/20.500.11815/3328 https://doi.org/10.24270/serritnetla.2020.6 |
Summary: | Þessi grein fjallar um starfendarannsókn sem framkvæmd var á einni deild í leikskóla á höfuðborgarsvæðinu veturinn 2017‒2018. Alls tóku sjö starfsmenn þátt í þessum hluta rannsóknarinnar sem er hluti af stærri rannsóknarverkefni á vegum RannUng sem ber heitið Mat á námi og vellíðan barna og eru þátttökuskólarnir fimm talsins. Markmið rannsóknarverkefnisins í heild var að þróa leiðir til þess að meta nám og vellíðan barna í hverjum leikskóla fyrir sig. Þátttakendur, í þeim leikskóla sem hér er fjallað um, völdu að nýta námssöguskráningar og ákváðu að skoða sérstaklega nám og vellíðan barna af erlendum uppruna. Áhersla var lögð á að fylgjast með og skrá breytingaferlið sem átti sér stað.Niðurstöðurnar benda til þess að námssöguskráningar geti nýst vel til þess að meta nám og vellíðan barna í leikskólum þar sem er fjölbreyttur barnahópur. Með námssöguskráningum lærði starfsfólk deildarinnar að lesa betur í margs konar tjáningu barna af erlendum uppruna sem gerði þeim kleift að hlusta betur eftir sjónarmiðum þessa barnahóps. Jafnframt sýna niðurstöðurnar að miklar hugarfarsbreytingar áttu sér stað hjá starfsfólkinu í gegnum ferli rannsóknarinnar. Þátttakan í starfendarannsókninni hafði áhrif á hugmyndir starfsfólksins um mat á námi og vellíðan barna og námssöguskráningarnar opnuðu augu þeirra fyrir styrkleikum og áhugasviði barnanna. Í gegnum ferli rannsóknarinnar urðu töluverðar breytingar á því hvað starfsfólkinu fannst mikilvægast að meta í leikskólastarfinu. Í lok rannsóknarinnar sá það mikilvægi þess að leggja áherslu á að meta þætti sem tengjast vellíðan barna betur en í upphafi. Þátttaka í rannsókninni virtist hafa meiri áhrif á hugmyndir leiðbeinenda um mat á námi og vellíðan barna en starfsmanna sem voru háskólamenntaðir. This article describes a collaborative action research project carried out in one preschool in a neighboring municipality of Reykjavík, as part of more extensive collaborative research conducted in five preschools. The aim of this study was to support participating preschool teachers and ... |
---|