Viðhorf Íslendinga til lyfja og lyfjameðferðar

Tilgangur: Að kanna viðhorf Íslendinga til lyfja. Aðferðir: Spurningalistinn The Beliefs about Medicines Questionnaire (BMQ) var þýddur, gildaður og notaður til að kanna viðhorf Íslendinga til lyfja. Einnig var spurt um heilsufar og sjúkdóma þátttakenda. Úrtakið var 1500 Íslendingar á aldrinum 18-75...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Vilhelmsdóttir, Hlíf, Jóhannsson, Magnús
Other Authors: Lyfjafræðideild (HÍ), Faculty of Pharmaceutical Sciences (UI), Heilbrigðisvísindasvið (HÍ), School of Health Sciences (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands / Icelandic Medical Association 2017
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/309
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.02.120
Description
Summary:Tilgangur: Að kanna viðhorf Íslendinga til lyfja. Aðferðir: Spurningalistinn The Beliefs about Medicines Questionnaire (BMQ) var þýddur, gildaður og notaður til að kanna viðhorf Íslendinga til lyfja. Einnig var spurt um heilsufar og sjúkdóma þátttakenda. Úrtakið var 1500 Íslendingar á aldrinum 18-75 ára sem fengið var úr nethópi Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Niðurstöður: Svarhlutfallið var 61,6%. Flestir Íslendingar eru jákvæðir gagnvart lyfjum og treysta þeim yfirleitt. Sjúklingar með langvinna sjúkdóma eru jákvæðari en aðrir þátttakendur og taka síður undir fullyrðingar um skaðsemi og ofnotkun lyfja. Menntun hefur mikil áhrif á viðhorfin með þeim hætti að fólk með minni menntun ber minna traust til lyfja. Kyn eða aldur hafa ekki teljandi áhrif á viðhorfin. Umræður: Niðurstöðurnar gefa góða mynd af viðhorfum Íslendinga til lyfja og lyfjameðferðar. Þær gætu skapað grundvöll umbótastarfs fyrir klíníska vinnu og til hagræðingar fyrir heilbrigðiskerfið. Slík vinna gæti stuðlað að málefnalegri umræðu um þátt lyfja í meðferð sjúkdóma, vanda tengdan meðferðarfylgni og betri samskiptum lækna við sjúklinga og lyfja­fyrirtæki. Objective: To study beliefs held by the general public in Iceland about medicines. Methods: The Beliefs about Medicines Questionnaire was used to explore Icelanders' beliefs about medicines. A sample of 1500 Icelandic citizens, aged 18-75, obtained from the Social Science Research Institute was given The Beliefs about Medicines Questionnaire. Results: The response rate was 61.6%. Most Icelanders have positive beliefs about their medication as well as general trust. Those who suffer from chronic diseases are more positive towards medicines than others and less inclined to view them as excessively used and harmful. Higher level of education predicts more positive beliefs towards medication - and vice versa. Gender and age do not seem to affect such beliefs. Conclusion: Gaining a better understanding of people´s beliefs about medicines and what determines these beliefs can be of ...