Depurð meðal skólabarna á Íslandi

Sú skoðun að kynslóðin sem nú vex úr grasi sé útsettari fyrir depurð en þær sem á undan hafa komið er útbreidd bæði á meðal almennings og fagaðila. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig algengi daglegrar depurðar íslenskra unglinga breyttist á árunum 2006–2018 og hvaða þættir tengdust dag...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Author: Arnarsson, Arsaell
Other Authors: School of education (UI), Menntavísindasvið (HÍ), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: The Educational Research Institute 2020
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/2597
https://doi.org/10.24270/serritnetla.2019.30
Description
Summary:Sú skoðun að kynslóðin sem nú vex úr grasi sé útsettari fyrir depurð en þær sem á undan hafa komið er útbreidd bæði á meðal almennings og fagaðila. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig algengi daglegrar depurðar íslenskra unglinga breyttist á árunum 2006–2018 og hvaða þættir tengdust daglegri depurð í fyrirlögn árið 2018. Notuð voru gögn úr rannsókninni Heilsa og lífskjör skólabarna (e. Health Behaviour in School-Aged Children - HBSC). Frá árinu 2006 hefur þessi rannsókn verið lögð fyrir í 6., 8. og 10. bekk á Íslandi og í síðustu fyrirlögn veturinn 2017–2018 fengust svör frá 7.159 nemendum. Niðurstöðurnar sýndu að tíðni daglegrar depurðar hafði aukist um þriðjung á tímabilinu, eða úr 5,8% árið 2006 í 7,6% árið 2018. Mjög slæm fjárhagsstaða fjölskyldu og svefnörðugleikar á hverri nóttu 25-földuðu líkurnar á því að unglingar fyndu fyrir depurð á hverjum degi. Að finnast maður vera alltof feitur 13-faldaði líkurnar, tíð áfengisneysla tífaldaði þær og einelti oft í viku nífaldaði þær. Þeir unglingar sem skilgreindu kyn sitt sem „annað“ en strákur eða stelpa, voru átta sinnum líklegri en jafnaldrar þeirra til að finna fyrir depurð daglega. Sama átti við um þá sem reyktu sígarettur eða kannabis reglulega. Fimmföldun á áhættu sást meðal þeirra sem notuðu rafrettur reglulega, áttu slök tengsl við foreldra eða við skóla. Slök vinatengsl þrefölduðu líkurnar. Aðrir þættir sem um það bil tvöfölduðu líkurnar voru annað fæðingarland unglings en Ísland og fæðingarland foreldra hans. Stelpur voru líka tvöfalt líklegri en strákar til að finna fyrir depurð nær daglega. Enn aðrir þættir höfðu veikari fylgni. Þannig voru 10. bekkingar helmingi líklegri en 6. bekkingar til að finna fyrir depurð daglega og óeðlileg skjánotkun jók líkurnar um 60%. Af niðurstöðunum má ráða að tíðni daglegrar depurðar meðal íslenskra unglinga hefur sannarlega aukist. Ýmsir þættir hafa fylgni við depurð unglinga en líklegast er að aukning í svefnörðugleikum skýri mest af þeirri aukningu sem sést. Although it is perfectly normal to ...