Summary: | Sérrit 2015 – Hlutverk og menntun þroskaþjálfa Öldruðum hefur fjölgað hér á landi eins og annars staðar í hinum vestræna heimi og almennt hefur heilsufar þeirra batnað. Með auknum fjölda eldra fólks og aukinni þekkingu á áhrifavöldum lífsgæða er þarft að kanna hvernig staða aldraðra birtist okkur hér á landi í byrjun 21. aldar. Umræða um aldraða í samfélaginu hefur á stundum verið nokkuð einsleit og neikvæð með áherslu á ýmsar aldurstengdar skerðingar og sjúkdóma. Í þessari grein eru lagðar aðrar áherslur, án þess þó að gera lítið úr þeim vandamálum sem vissulega er að finna hjá ákveðnum hópi eldri borgara. Markmið þessarar greinar er að veita yfirlit yfir rannsóknir sem fjalla um farsæla öldrun (e. successful aging). Kynntar eru skilgreiningar fræðimanna og rýnt í það sem þær eiga sameiginlegt, hvað greinir á milli og hvernig stuðla megi að farsælli öldrun. Auk fræðilegrar umfjöllunar verður litið á upplýsingar um álit aldraðra, sem aflað hefur verið á síðustu árum, á því hvað felist í farsælli öldrun. Gögn sem liggja þar til grundvallar eru svör einstaklinga við spurningum Þjóðminjasafns Íslands um þjóðhætti, ályktanir Félags sjúkraþjálfara frá árinu 2013 og loks nokkrar meistaraprófs- og bakkalársritgerðir sem fjalla um efnið. Þá verður sjónum beint að þroskaþjálfum sem unnið hafa á stofnunum sem veita öldruðum þjónustu og spurt hvað fagstétt þeirra geti lagt af mörkum til að stuðla að farsælli öldrun skjólstæðinga sinna. Gögn eru sótt í opinberar upplýsingar, bakkalárs- og meistaraprófsritgerðir auk viðtala sem höfundur hefur tekið við starfandi þroskaþjálfa. Breytt viðhorf setja nú mark sitt á þjónustu við aldraða og líta má á greinina sem innlegg í þá umræðu og þá þróun. The population grows older in many countries, also in Iceland, and the level of health among the elderly is rising, the elderly as a social group are getting older. With an growing number of older people and higher expectations regarding quality of life at the onset of the 21st cenury, it seems only appropriate to explore aging in ...
|