Þversagnir og kerfisvillur? Kortlagning á ólíkri stöðu bóknáms- og starfsnámsbrauta á framhaldsskólastigi
Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á ólíka stöðu bóknáms- og starfsnámsbrauta í framhaldsskólum hvað varðar inntak náms, félagslega virðingu, réttlæti og tækifæri til framhaldsmenntunar. Þetta hefur einnig verið umræðuefni hér á landi í næstum heila öld. Markmið greinarinnar er að skoða hvernig ó...
Published in: | Netla |
---|---|
Main Authors: | , , |
Other Authors: | , , , |
Format: | Book Part |
Language: | Icelandic |
Published: |
Menntavísindastofnun Háskóla Íslands
2018
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/20.500.11815/1415 https://doi.org/10.24270/serritnetla.2019.7 |
Summary: | Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á ólíka stöðu bóknáms- og starfsnámsbrauta í framhaldsskólum hvað varðar inntak náms, félagslega virðingu, réttlæti og tækifæri til framhaldsmenntunar. Þetta hefur einnig verið umræðuefni hér á landi í næstum heila öld. Markmið greinarinnar er að skoða hvernig ólík staða bóknámsog starfsnámsbrauta, með tilliti til virðingar, áherslu og forgangs, birtist í íslensku menntakerfi. Umfjöllunin er í þremur meginköflum: (1) Hlutverk og áhrif ytri stýringar – þá er sérstaklega vísað til menntastefnu stjórnvalda, til háskólastigsins og til atvinnulífsins; (2) Umgjörð framhaldsskóla og hvað kann að hafa áhrif á val nemenda; (3) Fyrirkomulag kennslu og mismunandi afstaða kennara. Leitast er við að varpa ljósi á þessa þætti með því að skoða annars vegar námskrár, skýrslur og önnur opinber gögn sem tengjast viðfangsefninu og hins vegar gögn úr rannsókninni Starfshættir í framhaldsskólum. Niðurstöðurnar ber allar að sama brunni: Ólík staða bóknáms- og starfsnáms er bæði kerfislæg og félagsleg og rætur hennar og tilvist er víða að finna. Birtingarmyndir ólíkrar stöðu komu fram í öllum meginköflunum. Stöðumun var að finna í viðhorfum í opinberri menntastefnu, í aðsókn og aðgengi að framhaldsskólanámi, kennsluháttum í framhaldsskólum og tækifærum að námi loknu. Mikilvægt er að skoða niðurstöðurnar í samhengi við jafnrétti til náms, tilgang menntunar og það hvernig ráðandi viðhorf lita stjórnsýslu menntamála, samfélagslega afstöðu og starfshætti í skólum, jafnvel þó að opinber stefnumótun einkennist af hinu gagnstæða og yfirlýst stefna sé að efla starfsnám. In a European context, there has long been a discussion on the problem of parity of esteem between vocational education and training (VET) and general academic upper secondary education (see for example CEDEFOP, 2014; Lasonen & Young, 1998; Parkes, 1993). VET education does not enjoy the same status as general academic upper secondary education, which usually provides a pathway to higher education. The disparity of esteem between ... |
---|