Starfshættir í framhaldsskólum: Aðdragandi og framkvæmd rannsóknar 2012–2018

Publisher's version (útgefin grein) Rannsóknin Starfshættir í framhaldsskólum fór fram á árunum 2012–2018. Hún var samstarfsverkefni rúmlega 20 manna hóps rannsakenda, bæði kennara og nemenda við Menntavísinda- og Félagsvísindasvið Háskóla Íslands með aðsetur á Rannsóknastofu um þróun skólastar...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Author: Óskarsdóttir, Gerður G.
Other Authors: Menntavísindasvið (HÍ), School of Education (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Book Part
Language:Icelandic
Published: Menntavísindastofnun Háskóla Íslands 2018
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/1413
https://doi.org/10.24270/serritnetla.2019.1
Description
Summary:Publisher's version (útgefin grein) Rannsóknin Starfshættir í framhaldsskólum fór fram á árunum 2012–2018. Hún var samstarfsverkefni rúmlega 20 manna hóps rannsakenda, bæði kennara og nemenda við Menntavísinda- og Félagsvísindasvið Háskóla Íslands með aðsetur á Rannsóknastofu um þróun skólastarfs á Menntavísindasviði. Rannsóknin var hluti af norræna öndvegissetrinu Justice through Education (JustEd, e.d.) sem styrkt var af NordForsk. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á starfshætti í framhaldsskólum og þann bakgrunn og þau öfl sem móta þá. Athyglin beindist einkum að skipulagi og stjórnun skóla og skólastarfs, námi og kennslu, námsumhverfi og viðhorfum nemenda, kennara og stjórnenda til skólastarfsins. Gagna var aflað árin 2013–2014 í níu framhaldsskólum víða um land sem voru valdir með lagskiptu slembiúrtaki. Fyrir liggja vettvangslýsingar á 130 kennslustundum (167 klukkustundum), skráð viðtöl við stjórnendur, kennara og nemendur, alls 61 að tölu við samtals 100 manns, 111 sett ljósmynda úr mannlausum kennslurýmum og 90 náms- eða kennsluáætlanir, auk opinberra gagna sem safnað var. Í þessu sérriti eru birtar tíu greinar sem byggjast á fyrrnefndum gögnum. Auk þeirra eru þrjár greinar eftir þátttakendur í rannsóknarhópnum sem byggjast á öðrum gögnum, ein þeirra á rætur í rannsókninni Skilvirkni framhaldsskóla, en tvær eru hluti af rannsókninni Framhaldsskólaval í Reykjavík og Helsinki. Rannsóknarhópurinn væntir þess að niðurstöður verði nýttar við mótun og skipulag þróunarstarfs í framhaldsskólum, við stefnumótun og þróun skólakerfisins í heild og að þær gagnist við bæði grunn- og símenntun kennara. Ráðgjöf um nýtingu niðurstaðna í þróunarstarfi er hluti af verkefninu, ef skólar óska eftir. This research project Upper secondary school practices in Iceland was carried out in 2012–2018. It was a cooperative undertaking by over 20 researchers, including teachers and graduate students at the Schools of Education and Social Sciences at the University of Iceland, and located in the Centre for Research ...