Hljóðlát bylting : aukinn aðgangur Íslendinga að vísindaefni

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Þróun á sviði upplýsingatækni síðastliðin fimmtán ár hefur umbylt starfsemi bókasafna og upplýsingamiðstöðva og þeirra sem þar starfa. Umbyltingarinnar sér einkum stað í aukinni hagræðingu ýmissa verkþát...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðrún Tryggvadóttir, Sólveig Þorsteinsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Skýrslutæknifélag Íslands 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/83333
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Þróun á sviði upplýsingatækni síðastliðin fimmtán ár hefur umbylt starfsemi bókasafna og upplýsingamiðstöðva og þeirra sem þar starfa. Umbyltingarinnar sér einkum stað í aukinni hagræðingu ýmissa verkþátta, betri nýtingu á fjármagni og stórbættu aðgengi notenda að upplýsingum um safnkost og að honum. Hérlendis á það einkum við um vísindatímarit á fjölmörgum fræðasviðum. Það má ekki síst þakka verkefninu um Landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Landsaðgangurinn hófst þann 23. apríl 1999 þegar opnað var fyrir aðgang þjóðarinnar að alfræðiritinu Britannica. „Hvar.is er vefur landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Aðgangurinn er opinn og endurgjaldslaus hjá notendum á Íslandi sem eru tengdir íslenskum netveitum þar sem hið opinbera, bókasöfn, stofnanir og fyrirtæki hafa þegar greitt fyrir áskriftirnar”1. Aðgangur heillar þjóðar að upplýsingum með þessum hætti er einsdæmi í heiminum. Hvatann að verkefninu má rekja til málþings sem Félag bókavarða í rannsóknarbókasöfnum stóð fyrir árið 1997 undir yfirskriftinni, „Upplýsingar á Interneti, málþing um aðgang atvinnulífs og vísindasamfélags að upplýsingum og upplýsingastefnu ríkisstjórnarinnar frá 1996, Framtíðarsýn ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið.“