Summary: | Hægt er að lesa greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Á undanförnum árum hefur víða verið rætt um ristilkrabbamein þar eð niðurstöður stórra slembirannsókna (1-3) hafa sýnt að unnt er að fækka dauðsföllum af völdum sjúkdómsins með því að skima eftir blóði í hægðum. Þá eru vísbendingar um að ekki skipti máli hvaða leitaraðferð sé beitt (blóðskimun í hægðum, stutt ristilspeglun, alristilspeglun eða röntgenmynd af ristli), allar skili nokkrum árangri, en mismiklum. Margt bendir til að besta rannsóknin sé alristilspeglun. Sú rannsókn krefst verulegs undirbúnings, dýrs tækjabúnaðar og flókins, sérmenntaðra starfskraftra, og góð aðstaða þarf að vera fyrir hendi. Rannsóknin sem kostar um 30 þúsund krónur er ekki án fylgikvilla (holgötun, blæðing), en alvarlegir fylgikvillar sjaldgæfir (dauðsföll 0,01-0,03%).
|