Rannsókn á dagsbirtu á Íslandi : skynjun ljóss og lita

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Dagsbirturannsóknir eru mikilvægar vegna þess að birta, bæði dagsbirta og lýsing, hefur gríðarleg áhrif á manninn. Tilgangur þessarar rannsóknar er að greina dagsbirtu á Íslandi með því að beita skynjuna...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sólveig Ragnarsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Sálfræðingafélag Íslands 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/79434
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Dagsbirturannsóknir eru mikilvægar vegna þess að birta, bæði dagsbirta og lýsing, hefur gríðarleg áhrif á manninn. Tilgangur þessarar rannsóknar er að greina dagsbirtu á Íslandi með því að beita skynjunarsálfræði og nýjustu niðurstöðum um keilugrunna. Margbreytileiki dagsbirtunnar árið 1998 er sérstaklega til umfjöllunar þar sem lögð er áhersla á dagsbirtuframboð, dagsbirtubreytileika, lisku dagsbirtunnar en einnig árstíðar- og dægursveiflur. Sú aðferðarfræði sem beitt er byggist á því að meta tölulega skynjaðan lýsingarstyrk og skynjaða liti birtunnar. Greiningin er miðuð við skynjunarferla, áðurnefndra keilugrunna, sem ætlað er að lýsa næmi ljósnema augna í manni með eðlilega þrílitasjón. Niðurstöður eru settar fram sem birtuframboð og er metið hversu hátt hlutfall það er af því birtuframboöi sem fæst þegar himinninn er heiður. Einnig er fjallað um breytileika birtuframboðs eftir árstíðum. Niðurstöður litmælinga eru settar fram með liskulíkani Mac-Leods og Boyntons. Einnig í því tilviki eru skynjaðir litir greindir og breytingu þeirra eftir árstíðum og klukkustundum sólarhringsins gerð nokkur skil. Helstu niðurstöður eru þær að dagsbirtuframboð er að meðaltali 60 prósent af því sem það getur orðið samkvæmt kenningum. Það kom í ljós að litahitastig dagsbirtu er óvenjulega hátt sem bendir til þess að eitt helsta einkenni himinisins er bláleitur litur. Ekki komu fram árstíðarsveiflur en dægursveiflur sjást hins vegar. Dægursveiflur sjást hins vegar. Enn fremur, sést að frávik er frá staðalhimni CIE. Ekki er vitað til þess að svipuð rannsókn hafi verið gerð á dagsbirtu hér á landi. Studying daylight is important, because light (both natural and artificial) has a profound effect on humans. The main objective of this study is to analyse some fundamental properties of daylight in Iceland, applying the concepts of environmental psychology emphasising the latest results in sensory psychology on cone fundamentals. The ...