Áhyggjur og kvíði á meðgöngu : eðlilegur fylgifiskur eða óásættanlegt fyrirbæri

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Þar sem meðganga er tími mikilla breytinga hjá konum, sérstaklega konum sem eiga von á sínu fyrsta barni álíta margir eðlilegt að tilfinningar eins áhyggjur og kvíði skjóti upp kollinum einhverntímann á...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigfríður Inga Karlsdóttir, Arna Rut Gunnarsdóttir, Eva Dögg Ólafsdóttir, Linda Björk Snorradóttir, Ragnheiður Birna Guðnadóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Ljósmæðrafélag Íslands 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/74453
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Þar sem meðganga er tími mikilla breytinga hjá konum, sérstaklega konum sem eiga von á sínu fyrsta barni álíta margir eðlilegt að tilfinningar eins áhyggjur og kvíði skjóti upp kollinum einhverntímann á meðgöngunni. En hvað er það sem veldur konum áhyggjum og kvíða á meðgöngu? Tilgangur þessarar rannsóknar er að fá innsýn í hugarheim kvenna varðandi áhyggjur og kvíða á meðgöngu og greina hverjar eru orsakir fyrri vanlíðaninni. Notast er við eigindlega rannsóknaraðferð og stuðst er við rannsóknaraðferð sem hefur verið nefnd aðferð Vancouverskólans í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru níu barnshafndi konur sem sóttu mæðravernd á Heilsugæslustöðina á Akureyri. Tekið var eitt viðtal við hverja konu og viðtölin hljóðrituð. Við úrvinnslu á viðtölum voru greind fimm þemu en þau voru; reynsla, fósturlát, fósturgallar, fæðing og daglegt líf. Helstu niðurstöður sýndu að allar konurnar fundu fyrir einhverjum áhyggjum tengdum meðgöngunni. Túlka má kvíða og áhyggjur kvennanna helst sem neikvæðar vangaveltur sem fæstar höfðu mikil áhrif á daglegt líf þeirra.