Árangur magahjáveituaðgerða á Íslandi 2001-2015

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Magahjáveituaðgerðir með kviðsjártækni hafa verið framkvæmdar á Landspítala frá árinu 2001. Aðgerðirnar eru mikilvægur með- ferðarmöguleiki fyrir sjúklinga með sjúklega offitu. Markmið þessarar rannsókna...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Þórarinsdóttir, Rósamunda, Pálmason, Vilhjálmur, Leifsson, Björn Geir, Gíslason, Hjörtur
Other Authors: 1 Læknadeild Háskóla Íslands, 2 skurðsviði Landspítala
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/620040
https://doi.org/10.17992/lbl.2016.10.100
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Magahjáveituaðgerðir með kviðsjártækni hafa verið framkvæmdar á Landspítala frá árinu 2001. Aðgerðirnar eru mikilvægur með- ferðarmöguleiki fyrir sjúklinga með sjúklega offitu. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna langtímaárangur slíkra aðgerða hérlendis. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin tók til 772 sjúklinga sem gengust undir magahjáveituaðgerð á Landspítala árin 2001-2015. Upplýsinga var aflað úr framskyggnum gagnagrunni offituaðgerða sem er hluti af sjúkraskrárkerfi spítala. Fullnægjandi þyngdartap var skilgreint sem annaðhvort þyngdarstuðull undir 33 kg/m2 eða meira en helmingstap af yfirþyngd (MIL skilgreint sem prósenta af tapi á yfirþyngd, umfram þyngdarstuðul 25 kg/m2 ). Niðurstöður: Meðalaldur sjúklinga var 41 ár. 83% voru konur. Meðal- þyngd sjúklinga var 127 kg (±20) og líkamsþyngdarstuðull (BMI, kg/m2 ) var 44 (±6) að meðaltali. Meðal MIL var 80% eða 57 kg (±15) eftir 1,5 ár, 70% eða 50 kg (±15) eftir 5 ár og 64% eða 48 kg (±14) eftir 10-13 ár. 85% sjúklinga náðu fullnægjandi þyngdartapi með meðaleftirfylgni 7,4 ár eftir aðgerð. Sjúklingar voru að meðaltali með 2,8 fylgisjúkdóma offitu fyrir aðgerð. 71% sjúklinga með sykursýki af tegund tvö fyrir aðgerð fóru í fullt sjúkdómshlé eftir aðgerð. Rúmlega þriðjungur sjúklinga með háþrýsting eða blóðfituraskanir urðu lyfjalausir eftir aðgerð. Snemmkomna fylgikvilla fengu 37 (5%) sjúklingar og fór helmingur þeirra í bráðaaðgerð. Síðkomna fylgikvilla eftir aðgerð fékk fjórðungur sjúklinga (174). Hjá flestum sjúklinganna (78%) þurfti að gera endurteknar breytingar á inntöku vítamína og bætiefna í samræmi við niðurstöður blóðprufa í eftirliti. Ályktun: Magahjáveituaðgerð hjálpar meirihluta sjúklinga að ná tilsettu þyngdartapi. Samhliða því fékk meirihluti sjúklinga bót á fylgisjúkdómum offitu. Snemmkomnir fylgikvillar voru fátíðir en um fjórðungur sjúklinga fékk síðkomna fylgikvilla sem stundum kröfðust nýrrar aðgerðar. Sjúklingar sem fara í ...