Árangur aðgerða vegna bráðrar ósæðarflysjunar af gerð A á Íslandi
Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Ósæðarflysjun í brjóstholshluta ósæðar er lífshættulegur sjúkdómur sem krefst flókinnar meðferðar þar sem tíðni fylgikvilla er há. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árangur skurðaðgerða sem fram...
Published in: | Læknablaðið |
---|---|
Main Authors: | , , , , |
Other Authors: | |
Format: | Article in Journal/Newspaper |
Language: | Icelandic |
Published: |
Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavikur
2016
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/2336/596492 https://doi.org/10.17992/lbl.2016.02.64 |
Summary: | Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Ósæðarflysjun í brjóstholshluta ósæðar er lífshættulegur sjúkdómur sem krefst flókinnar meðferðar þar sem tíðni fylgikvilla er há. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árangur skurðaðgerða sem framkvæmdar hafa verið á Íslandi vegna bráðrar ósæðarflysjunar af Stanford-gerð A en slík rannsókn hefur ekki verið gerð áður hérlendis. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á 45 sjúklingum (meðalaldur 60,7 ár, 68,9% karlar) sem gengust undir aðgerð vegna bráðrar ósæð- arflysjunar af gerð A á Landspítala frá 1992 til 2014. Úr sjúkraskrám var safnað saman breytum sem tengdust heilsufarssögu, aðgerðartengdum þáttum og fylgikvillum. Heildarlifun var reiknuð með aðferð Kaplan-Meier en meðaltal eftirfylgdar var 55,6 mánuðir. Niðurstöður: Alls voru gerðar 45 aðgerðir á tímabilinu þar sem tæplega þrír fjórðu aðgerða (73,3%) voru framkvæmdar á seinni hluta rannsóknartímabilsins. Tæplega helmingur (46,7%) sjúklinga voru í losti við komu á sjúkrahús og 26,7% höfðu blóðþurrðareinkenni til líffæra. Fjölskyldusaga um ósæðarflysjun var til staðar hjá 15,5% sjúklinga. Ósæðinni var skipt út með Dacron®-gerviæð í 86,7% tilfella, hjá tæplega þriðjungi sjúklinga þurfti að skipta út ósæðarrót og hjá 31,1% sjúklinga var blóðrás stöðvuð í kælingu. Meiriháttar fylgikvillar greindust eftir aðgerð hjá 60,1% sjúklinga þar sem enduraðgerð vegna blæðingar (29,3%) og heilablóðfall (14,6%) voru algengastir. Tíu sjúklingar létust innan 30 daga frá aðgerð (22,2%). Lifun 5 og 10 árum frá aðgerð var 71,4 ± 8,2% og 65,4 ± 9,4%. Ályktun: Aðgerðum vegna ósæðarflysjunar í rishluta ósæðar hefur fjölgað umtalsvert á síðastliðnum áratug hér á landi. Fylgikvillar eru tíðir, sérstaklega enduraðgerðir, en dánartíðni skemmri en 30 daga og langtímalifun eru sambærilegar við erlendar rannsóknir. Objectives: Acute type A aortic dissection is a life-threatening disease associated with significant morbidity and mortality. Treatment is challenging and requires ... |
---|