Er þörf á sérstakri heilbrigðismóttöku fyrir háskólanemendur?

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Tilgangur: Víða erlendis hafa háskólanemendur aðgang að heilbrigðisþjónustu sem er sérstaklega ætluð þeim. Tilgangur þessarar könnunar meðal nemenda við Háskóla Íslands var að skoða þörf þeirra fyrir sérstaka heilb...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sóley S. Bender, Anna Bryndís Blöndal, Þorvarður Jón Löve, Ólöf Guðný Geirsdóttir, Andri S. Björnsson, Inga B. Árnadótti, Helga Gottfreðsdóttir, Sigrún Vala Björnsdóttir, Urður Njarðvík
Other Authors: Hjúkrunarfræðideild Háskóli Íslands, læknadeild Háskóli Íslands, matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, lyfjafræðideild Háskóla Íslands, sálfræðideild Háskóla Íslands, tannlæknadeild Háskóla Íslands, námsbraut í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands, námsbraut í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Félag íslenskar hjúkrunarfræðinga 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/346884
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Tilgangur: Víða erlendis hafa háskólanemendur aðgang að heilbrigðisþjónustu sem er sérstaklega ætluð þeim. Tilgangur þessarar könnunar meðal nemenda við Háskóla Íslands var að skoða þörf þeirra fyrir sérstaka heilbrigðismóttöku. Aðferð: Rafræn könnun var lögð fyrir 9744 nemendur við háskólann vorið 2011 sem voru á póstlista. Spurningalistinn var saminn af vinnuhópi sem í voru fulltrúar frá öllum deildum Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Stuðst var við lýsandi tölfræði við gagnagreiningu. Niðurstöður: Alls bárust svör frá 1487 þátttakendum, 1427 íslenskumælandi og 60 enskumælandi, og gefa svörin því mynd af viðhorfum 15,2% nemenda við skólann. Úrtakið endurspeglar einkum viðhorf kvenstúdenta og nema í grunnnámi. Tæplega 40% íslensku nemanna og um 70% þeirra erlendu höfðu ekki heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður sýndu að meirihluti þeirra þurfti á heilbrigðisþjónustu að halda á árinu fyrir könnunina en rúmlega helmingur beið með að leita eftir heilbrigðisþjónustu og var meginástæða þess kostnaður. Um þriðjungur íslensku nemanna og fimmtungur þeirra erlendu sögðust eiga í fjárhagsvanda. Um 92% þeirra íslensku og allir erlendu nemarnir sögðust mundu leita á móttöku þar sem þjónustan væri veitt af nemendum skólans undir leiðsögn kennara. Báðir hóparnir vildu hafa aðgang að fjölbreyttri heilbrigðisþjónustu. Ályktanir: Niðurstöðurnar gefa til kynna að þeir háskólanemendur, sem þátt tóku í könnuninni, hafi mikla þörf fyrir sérstaka heilbrigðismóttöku. Kostnaður hefur hvað mest hindrað þá í að leita eftir heilbrigðisþjónustu. Jafnframt er stór hópur án heimilislæknis, einkum sá erlendi, og hefur því ekki greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu á heilsugæslustöðvum. Purpose: In many neighbouring countries university students have access to health services which are specially geared to their needs. The purpose of this survey among university students at the University of Iceland was to explore their need for a special ...