Ofurnæmi tannbeins. Könnun meðal íslenskra tannlækna og tannfræðinga

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Viðkvæmni eða ofurnæmi í tannbeini (OT) er vandamál sem tannlæknar þekkja vel og erfitt er að meðhöndla. Þegar tannbein verður berskjaldað í munnholi (einkum við tannhálsa) getur erting af ýmsum toga (va...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jónas Geirsson
Other Authors: Tannlæknadeild Háskóli Íslands/ University of Iceland, Faculty of Odontology, Reykjavik , Ic
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Tannlæknafélag Íslands 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/332160
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Inngangur: Viðkvæmni eða ofurnæmi í tannbeini (OT) er vandamál sem tannlæknar þekkja vel og erfitt er að meðhöndla. Þegar tannbein verður berskjaldað í munnholi (einkum við tannhálsa) getur erting af ýmsum toga (varmi, flæðispenna, snerting) valdið sársauka eða stundarverk þegar vökvi flæðir gegnum tannbeinspíplurnar (hydrodynamic theory). Margar meðferðir hafa verið reyndar til að minnka eða stöðva þessa viðkvæmni (tannkrem, CO2 laser irradiation, bindiefni, antibacterial lyf, flúorskol og lökk, calcium phosphate, potassium nitrate, oxalates). Tilgangur þessarar könnunar var að fá upplýsingar um ofurnæmi í tannbeini hjá sjúklingum tannlækna og tannfræðinga á Íslandi. Efni og aðferðir: Rafræn könnun með 21 spurningum (YouGov Zapera A/S) var send til tannlækna og – fræðinga á Íslandi í ágúst og september 2009. Alls svöruðu 40 (38 tannlæknar og 2 tannfræðingar). Könnunin miðaði að því að athuga atriði er tengjast ofurnæmi í tannbeini hjá sjúklingum sem koma á tannlæknastofur. Niðurstöður: Ofurnæmi í tannbeini var oftar skráð hjá konum (60%) en körlum (3%). Algengustu aldurskeið skráð með ofurnæmi voru 30-39 ára (33%), 40-49 ára (25%) og 20-29 ára (18%). Algengustu tennur með ofurnæmi voru efrigóms forjaxlar og jaxlar, því næst neðrigóms framtennur og jaxlar og að endingu efri góms framtennur. Tennur með tannholdshörfun voru oftast skráðar með viðkvæmni (68%), þar á eftir fylltar tennur (13%) og tennur með erosionum (13%). Tennur eftir periomeðferð voru skráðar í fyrsta sæti 8% tilfella. --- Introduction: Dentin hypersensitivity (DH) is a well described pathogenesis. Treatment options are many and different, but problematic with uncertain prognosis. The purpose of the study was to examine a number of conditions regarding dental hypersensitivity amongst dentists and dental hygienists in Iceland. Material and Methods: A structured questionnaire on dentin hypersensitivity were used in the survey. Twenty questions (YouGov Zapera ...