Sótthreinsun á vatnsleiðslum tannlæknatækja við Háskóla Íslands

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hvort að tannlæknatæki tannlæknadeildar H.Í. uppfylli þær kröfur um hreinleika vatns innan á vatnsleiðslum og í framhaldi að innleiða sótthreinsun á vatnsleiðslum. Aðfer...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hanna G. Dan, W. Peter Holbrook
Other Authors: Tannlæknadeid Háskóla Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Tannlæknafélag Íslands 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/332137
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hvort að tannlæknatæki tannlæknadeildar H.Í. uppfylli þær kröfur um hreinleika vatns innan á vatnsleiðslum og í framhaldi að innleiða sótthreinsun á vatnsleiðslum. Aðferðin var að safna sýnum í upphafi áður en nokkur meðferð væri hafin. Vatni (20 mL.) var safnað úr túrbínum, þrenndar vatnssprautum (3-way) og drykkjarvatni stólsins. Einnig var tekið sýni úr kranavatni til handþvottaar. Vatnssýni (0,5 mL.) var blandað við tryptic soy-yeast extract æti. Eftir 24 tíma ræktun voru bakteríur taldar. Niðurstöður voru þær að í fyrstu sýnatöku voru bakteríur > 105 cfu/mL úr vatnsleiðslum tannlæknatækja. Úr kranavatni voru 50-300 cfu/mL. Þar var meðal annars E.coli. Þá var byrjað að sótthreinsa vatnsleiðslur tannlæknatækja tvisvar í viku með sótthreinsiefnum sem framleiðendur tækjana mæla með. Annars vegar Calbenium®, hins vegar Citrisil®. Ákveðið var að láta vatn renna í gegnum leiðslur á þeim tækjum sem ekki voru útbúin sótthreinsiútbúnaði. Þetta var gert tvisvar í viku 30 sek. í senn. Drykkjarvatn var látið renna daglega en ekki er hægt að sótthreinsa drykkjarvatn. Eftir tvær vikur var sýnatakan endurtekin. Veruleg fækkun örvera varð þó mismunandi eftir aldri tækja. (sjá töflu 1). Ályktun: niðurstöður sýndu verulega fækkun á bakteríum. Ekki var síður fækkun á bakteríufjölda frá þeim stólum sem ekki er hægt að láta sótthreinsiefni renna í gegnum. --- Dental unit water lines (DUWL) can be a potential contamination risk for patients and staff. Microbes from the biofilm that collects inside the waterlines pass into the water when the equipment is used. The dental clinic in the University of Iceland has 3 generations of dental chairs of which the oldest one has a water supply system that cannot be accessed for disinfection purposes. Objectives: Before implementing a new DUWL disinfection policy the problem of bacterial contamination was investigated. Methods: Water samples (20mL) were ...