Val fyllingaefna á Íslandi með áherslu á I. og II. klassa fyllingar

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Markmið rannsóknarinnar var að kanna notkun tannfyllingaefna meðal tannlækna í almennum rekstri hér á landi og sérstaklega val fyllingaefna í álagsfleti jaxla og forjaxla og bera niðurstöður saman við fyrri rannsók...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Svend Richter, Sigfús Þór Elíasson
Other Authors: Tannlæknadeild Háskóla Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Tannlæknafélag Íslands 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/332112
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Markmið rannsóknarinnar var að kanna notkun tannfyllingaefna meðal tannlækna í almennum rekstri hér á landi og sérstaklega val fyllingaefna í álagsfleti jaxla og forjaxla og bera niðurstöður saman við fyrri rannsóknir höfunda árin 1983 og 2000. Sérstaklega var höfð í huga sú tilhneiging að nota plastblendi í stað amalgams. Eitt hundrað og níutíu tannlæknar sem stunda almennar tannlækningar var boðin þátttaka. Þeir voru beðnir að skrá aldur og kyn sjúklings, starfsaldur tannlæknis í árum frá útskrift og nota fyrirfram skilgreindar ástæður fyrir gerð 100 tannfyllinga og endurgerð fyllinga. Níutíu og sjö tannlæknar (51.1%), 59 karlar og 38 konur skiluðu útfylltum skráningareyðublöðum með upplýsingum um 9.043 tannfyllingar og 604 skorufyllur, 48.9% í körlum og 51.1% í konum. Meðalaldur sjúklinga var 36.5 ár og meðal árafjöldi frá útskrift tannlækna var 19.5 ár. Af öllum fyllingum voru 85.2% plastblendi fyllingar, 7.1% amalgam, 4.4% glerjonomer og 3.3% önnur fyllingaefni. Af öllum fyllingum voru 1.770 I. klassa og 2.884 II. klassa, samtals 4.654 fyllingar, sem voru settar í álagsfleti jaxla og forjaxla. Algengast var að I. klassa fyllingar væru settar í 11-20 ára meðan flestar II. klassa fyllingar voru settar í elsta hópinn. Plastblendi reyndist ríkjandi fyllingaefni bæði í I. klassa (89.7%) og II. klassa fyllingum (83.7%), en amalgam í samsvarandi fyllingar í 3.3% og 10.6% tilfella. Karlar fengu marktækt (p<0.001) fleiri amalgam fyllingar (9.2%) en konur (6.2%), en ekki reyndist marktækur munur hvað plastblendi varðar (93.8% í konum, 90.8% í körlum). Rannsóknin sýnir að plastblendi er langalgengasta fyllingaefnið, einnig í álagsflötum jaxla. --- The aim of the investigation was to study the restorative pattern in Icelandic general dental practice with regard to selection of restorative materials in stress bearing areas in posterior teeth and compare to reported use in 1983 and 2000. The study especially focused on the trend ...