Reynsla og viðhorf kvenna: Umönnun í sængurlegu á stofnun og heima

Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á sængurlegu- þjónustu á Íslandi. Svokölluð heimaþjónusta ljósmæðra hefur verið í boði í 20 ár og notendum hennar stöðugt fjölgað samfara styttri sjúkrahúsvist. Viðmi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Sigurðardóttir
Other Authors: Landspitali, Reykjavík, Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Ljósmæðrafélag Íslands 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/325035
Description
Summary:Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á sængurlegu- þjónustu á Íslandi. Svokölluð heimaþjónusta ljósmæðra hefur verið í boði í 20 ár og notendum hennar stöðugt fjölgað samfara styttri sjúkrahúsvist. Viðmið um heilsufar móður og barns sem forsendur fyrir snemmútskrift og aðgengi að heimaþjónustunni hafa einnig orðið sveigjanlegri. Rannsóknir hafa gefið til kynna frekar jákvæð viðhorf kvenna til sængurleguþjónustu á Íslandi, sérstaklega heima- þjónustunnar, en á niðurskurðartímum er sérstaklega mikilvægt að standa vörð um gæði og öryggi þjónustunnar og meta árangur hennar markvisst, meðal annars með skoðun á viðhorfum notenda hennar. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf og reynslu kvenna af þjónustu sem veitt er í sængurlegu bæði á stofnun og heima. Rannsóknin var með blönduðu sniði þar sem annars vegar var notast við staðlaða spurningakvarða upphaflega þróaða af Carty (1990) og Hodnett (1998), og hins vegar opnar spurningar. Kvarðarnir mæla viðhorf til veittrar fræðslu (FRÆÐSLA), ánægju/ óánægju með þjónustuna (ÁNÆGJA) og viðhorf til innihalds þjón- ustunnar (ÞJÓNUSTA). Markhópur rannsóknarinnar voru konur sem nýttu sér barneignarþjónustu á vormánuðum 2012 annars vegar á Landspítala og hins vegar á sjúkrahúsi Vesturlands. Alls var 200 listum dreift á sængurlegudeild fæðingarstofnanna og fengu þátttak- endur þá afhenta fyrir útskrift ásamt kynningarbréfi og voru beðnir um að svara listunum og póstsenda í framhaldi af því að heima- þjónustunni lauk. Gagnasöfnunin var því framvirk en úrtaksvalið þægindaúrtak er náði til 62 kvenna (skil 31%). Niðurstöður rannsóknarinnar styðja fyrri sambærilegar rann- sóknir og gefa til kynna almenna ánægju kvenna með sæng- urleguþjónustuna, einkum heimaþjónustu ljósmæðra þar sem stærstur hluti kvenna vill að þjónustunni sé viðhaldið og aðgengi að henni jafnvel aukið. Heildarmeðalstig úr kvörðunum þremur, FRÆÐSLA, ÁNÆGJA og ÞJÓNUSTA sýndu að marktækur munur var á viðhorfum ...