Summary: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Landspítali hefur í fyrsta skipti lagt fram heildstæða og samþætta viðbragðsáætlun sem tekur til eitrana, farsótta, geislavár, hópslysa og rýmingar vegna bruna til þess að geta tekist á við ófyrirséða atburði þar sem lífi og limum fólks er stofnað í hættu. Eldri viðbragðsáætlanir fjölluðu eingöngu um hópslys. Viðbragðsáætlunin tekur mið af þeim miklu breytingum sem hafa orðið á undanförnum áratug á Íslandi og í samfélagi þjóðanna. Flestir eru sammála um að viðbragðsáætlanir þurfi að vera heildstæðar en þó með áherslubreytingum, til dæmis vegna eitrana, farsótta og geislavár. Þá er unnið eftir gátlistum sem líta svipað út óháð atburði en gefa samt góða yfirsýn yfir viðbragðsstigin til þess að auðvelda starfsfólki Landspítala starfið þegar að mikið liggur við. Viðbragðsstig áætlunar eru fjögur: undirbúningsstig, viðbúnaðarstig, virkjunarstig og neyðarstig.
|